Atvinnulíf

Sögurnar í fyrra: Því lífið er svo miklu meira en bara vinnan

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Í Atvinnulífinu á Vísi ræðum við alltaf um lífið og tilveruna á einlægu nótunum; vinnuna og einkalífið í bland. Enda sjaldnast að þetta tvennt haldist ekki eitthvað í hendur. Árið 2024 kynntumst við fjölmörgum forkólfum í atvinnulífinu. Þekktum andlitum og óþekktari. Því allir hafa sínar áhugaverðu sögur að segja.
Í Atvinnulífinu á Vísi ræðum við alltaf um lífið og tilveruna á einlægu nótunum; vinnuna og einkalífið í bland. Enda sjaldnast að þetta tvennt haldist ekki eitthvað í hendur. Árið 2024 kynntumst við fjölmörgum forkólfum í atvinnulífinu. Þekktum andlitum og óþekktari. Því allir hafa sínar áhugaverðu sögur að segja. Vísir/Vilhelm, RAX

Sem fyrr er það einlægnin, það mannlega, oft húmorinn og síðan starfsframinn sem tekinn er fyrir í viðtölum Atvinnulífsins.

Enda svo gaman að kynnast fólki!

Stundum þurfum við svoítið að lesa í karakterinn sem er í viðtölunum. 

Sem til dæmis kenndu gömlum vinum sínum að drekka dry á Hallærisplaninu til að þurfa minna að pissa á djamminu í den.

Eða leika sér með íslenskuna þannig að eflaust supu einhverjir lesendur hveljur...

Oft þarf þó að ræða erfið mál. Atvinnulífið í Grindavík fyrr og nú er til dæmis gott dæmi.

Eða óvissan sem greip um sig um sig alls staðar eftir bankahrun.

En sem betur fer getum við líka alltaf talað um aðeins mýkri málin. Þótt þau tengist bissness.

Síðustu árin hefur Atvinnulífið rifjað upp tímanna tvenna með ýmsum rótgrónum fjölskyldufyrirtækjum.

 Í fyrra lögðum við líka áherslu á að kynnast nokkrum ungum stjórnendum sem eru að gera það gott.

Við heyrðum líka af því hvernig rómantíkin getur verið partur af vinnunni okkar.

Eða um ævintýralíf þeirra sem allir hafa þekkt nafnið á í áratugi.

Reglulega ræðir Atvinnulífið einmitt við Íslendinga sem búa erlendis.

Að sama skapi kynnumst við líka reglulega fólki á Íslandi sem kemur annars staðar frá.

Árið kvöddum við síðan með einlægu forstjóraviðtali við konu í Kauphallarfyrirtæki.

Fleiri viðtöl í Atvinnulífinu má lesa HÉR.


Tengdar fréttir

Sögurnar í fyrra: Því lífið er svo miklu meira en bara vinnan

Við upplifum mörg mikla ástríðu fyrir vinnunni okkar. En vitum að lífið er svo miklu meira en vinnan. Viðtölin í Atvinnulífinu taka mið af þessu og þar er mannlega hliðin því alltaf í fyrirrúmi. Enda eru þessi viðtöl vel lesin.

Hvetur fólk til að nota arf barnanna og nýta peningana sína snemma

„Notaðu arf barna þinna er meira að segja yfirskrift ferðaskrifstofu í Danmörku sem sérhæfir sig í ferðum fyrir fólk á þriðja æviskeiði. Sem ég er sammála um að fólk geri og hvet fólk til að nýta peninga sína snemma og á meðan það hefur heilsu til,“ segir Tryggvi Pálsson og bætir við:

Röddin mín: Naktir miðaldra karlmenn í fjáröflun

„Þetta er besta partí sem ég hef farið í,“ segir Dalvíkingurinn Friðrik Már Þorsteinsson um fimmtugsafmælið sitt; veislu sem hann hélt í Hull í Bretlandi þar sem hann býr ásamt eiginkonu og tveimur dætrum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×