Lífið

Segist á bata­vegi og heim­sækir sjúkra­húsið sem hún dvaldi á

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Katrín heimsótti sjúkrahúsið sem hún dvaldi á í veikindunum í dag.
Katrín heimsótti sjúkrahúsið sem hún dvaldi á í veikindunum í dag. Getty

Katrín Middleton prinsessa af Wales segist á batavegi eftir að hafa greinst með krabbamein í byrjun síðasta árs. Hún segist nú einbeita sér að því að ná fullum bata.

Í Instagram færslu þakkar Katrín starfsfólki konunglega Marsden sjúkrahússins fyrir að hlúa að henni í veikindum hennar undanfarið ár. Hún lauk lyfjameðferð við krabbameininu í september. 

Katrín deildi myndum úr opinberri heimsókn sinni á sjúkrahúsið í dag samhliða færslunni. Á myndunum sést hún ræða við sjúklinga og starfsfólk sjúkrahússins.

„Sem velunnari konunglega Marsden sjúkrahússins vona ég að með tímamótarannsóknum og vísindum og með velferð sjúklinga í fyrirrúmi getum við bjargað fleiri lífum og umbreytt upplifun þeirra sem glíma við krabbamein,“ segir Katrín í færslunni. 

Hún segir mikinn létti að vera á batavegi og nú einbeiti hún sér að því að halda sér heilsuhraustri. „Eftir að hafa gengið í gegn um krabbameinsgreiningu veit ég að það tekur tíma að aðlagast nýjum veruleika. Ég lít þó björtum augum til komandi árs.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.