Veður

Úrkomusvæði vaxandi lægðar nálgast óðum

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Búast má við miklum leysingum, auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum og því mikilvægt að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón.
Búast má við miklum leysingum, auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum og því mikilvægt að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón. Vísir/Vilhelm

Smálægð milli Íslands og Grænlands beinir hægri suðlægri átt með slydduéljum að landinu. Suður í hafi er vaxandi lægð sem hreyfist norður á bóginn og í nótt er von á allhvassri suðaustanátt með rigningu og hækkandi hita.

Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands um veðurhorfurnar næstu daga.

Þar segir að búast megi við miklum leysingum, auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum og því sé mikilvægt að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón. Gefnar hafa verið út veðurviðvaranir og er fólk því hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám.

Lægðin verður svo komin langt norður í Dumbshaf á mánudagsmorgun og fer þá nýtt úrkomusvæði yfir landið og það hlýnar aftur.

Skúrir í dag en hlýrra

Veðurhorfur á landinu í dag eru þannig að von er á fimm til þrettán metrum á sekúndu suðaustan og sunnan, skúrum eða slydduéljum og tíu til átján metrum á sekúndu norðvestantil. Þá verður samfelld úrkoma um tíma í dag en norðaustanlands verður hægari vindur og bjart með köflum. 

Hiti allvíða eitt til sjö stig en þó er von á vægu frost austantil fram að hádegi.

Seint í kvöld hvessir sunnan- og vestanlands, suðaustan verða í nótt þrettán til tuttugu metrar á sekúndu og rigning. Hægara og þykknar upp norðaustantil í fyrramálið, tíu til fimmtán metrar á sekúndu og rigning seinnipartinn, en lægir þá og rofar til vestanlands. 

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á mánudag: Suðlæg átt 8-15 m/s og allvíða rigning eða súld, en skúrir eftir hádegi. Styttir upp á norðaustanverðu landinu síðdegis. Hiti víða tvö til átta stig.

Á þriðjudag: Suðvestlæg eða breytileg átt 5-15, hvassast austantil. Rigning með köflum, en samfelldari úrkoma syðst á landinu. Hiti breytist lítið.

Á miðvikudag: Suðlæg eða breytileg átt 13-20 og rigning, en úrkomulítið norðaustanlands. Áfram milt. Kólnar um kvöldið með snjókomu eða éljum um landið vestanvert.

Á fimmtudag: Norðlæg átt og snjókoma með köflum, en stöku él vestanlands. Frost víða núll til sjö stig.

Á föstudag: Útlit fyrir vaxandi austanátt með snjókomu, en síðar rigningu eða slyddu sunnanlands. Hlýnar smám saman.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×