Skoðun

Skil­yrt lof­orð

Þorsteinn Sæmundsson skrifar

Í nýlokinni kosningabaráttu kom fram hjá formanni og prókúruhafa flokks fólksins að flokkurinn lofaði öldruðum og öryrkjum laun að lágmarki kr. fjögurhundruð og fimmtíu þúsund á mánuði „skatta og skerðingarlaust”. Loforð þetta var sagt ófrávíkjanlegt skilyrði fyrir ríkisstjórnarþátttöku flokksins enda eins og formaðurinn orðaði það sjálf: „...að ég á ekkert erindi í einhvern ráðherrastól ef ég get ekki staðið við það minnsta kosti sem er algjör tilurð flokks fólksins.” (Forystusætið RUV)

Í stuttu máli kom í ljós strax að afloknum kosningum, varla búið að telja upp úr kössunum, að þetta loforð var einskis virði. Enda mátti öllum ljóst vera „að flokkur fólksins fékk ekki fimmtiu og eitt prósent atkvæða.” sem er eftiráskýring formanns og prókúruhafa flokks fólksins. Loforðið var semsagt skilyrt líkt og lánsloforð eru stundum í bönkum. Skilyrði flokks fólksins var að flokkurinn fengi hreinan meirihluta í kosningunum nýliðnu en ekki hefur enn gerst að einn flokkur fái hreinan meirihluta í þingkosningum á Íslandi. Ég minnist þess ekki að nokkru sinni hafi komið fram af hálfu flokks fólksins í kosningabaráttunni að loforðið til öryrkja og eldri borgara og önnur loforð s.s. að ekki skyldi gengið til samninga við ESB væru skilyrt. Skilyrðin fyrir kúvendingu í Evrópumálum og að forsóma réttindi öryrkja og aldraðra voru háð ráðherrasætum forystufólki flokks fólksins til handa. Það er því ljóst að frambjóðendur flokks fólksins fóru fram með blekkingum í kosningabaráttunni lofandi hlutum sem aldrei stóð til að standa við. Þetta er reyndar með meiri svikum á kosningaloforðum sem höfundur man eftir hafandi fylgst með pólitík í áratugi.

Varðandi Evrópumálin má minna á orð formanns og prókúruhafa flokks fólksins: „Ég sem kjörinn fulltrúi hér, sem elska mitt land og elska mitt fullveldi og okkar lýðveldi og okkar lýðræði, okkar sjálfstæði og okkar stjórnarskrá, mun ekki greiða því atkvæði að bókun 35 nái fram að ganga eins og hér virðist eiga að verða að veruleika,“ (Umræður á Alþingi um skýrslu utanríkisráðherra 13.feb.2024.) „Staðreyndin er sú að þessi bókun 35, að okkar viti og mínu viti, er hreinlega, bara gengur algerlega í berhögg við aðra grein stjórnarskrár lýðveldisins.“ Vísaði formaðurinn þar til fullveldisákvæðis stjórnarskrárinnar. „Við munum berjast gegn þessari bókun 35 eins og kostur er.” Þessir frasar hafa reynst skítódýrir.

Einnig má minna á afstöðu Eyjólfs Ármannssonar þingmanns flokks fólksins nú ráðherra sem var til skamms tíma formaður samtakanna Orkan okkar. Hann hafði lýst því hátíðlega yfir margsinnis að hann myndi aldrei styðja bókun 35 enda færi hun í bága við Stjórnarskrá Íslands. :„Framsal lög­gjaf­ar­valds­ins. Þess vegna var bók­un 35 ekki sett í lög. Þetta er þjóðrétt­ar­leg skuld­bind­ing í dag gagn­vart Evr­ópu­sam­band­inu. Þetta er ekki inni í lög­um og lausn­in var 3. grein laga um EES-samn­ing­inn. Það er al­veg krist­al­tært að ef þetta verður sett í lög mun það ganga gegn lög­gjaf­ar­vald­inu, um framsal lög­gjaf­ar­valds, og ganga gegn stjórn­ar­skránni.“

Óðar en eftir var leitað féll hann frá þessari afstöðu sinni. Ekki fyrir 30 silfurpeninga heldur ráðherrastól. Eyj­ólf­ur sagði í viðtali á Útvarpi Sögu 13. sept­em­ber að þeir sem hefðu áhuga á full­veldi Íslands myndu berj­ast gegn bók­un 35 og þar á meðal hann. Spurður út í þessi um­mæli og hvort hann myndi berj­ast gegn mál­inu svar­ar hann að flokk­ur fólks­ins sé í mála­miðlun­um. „Ég mun ekki gera bók­un 35 að ágrein­ings­máli inn­an stjórn­ar­flokk­anna. Það eru al­veg hrein­ar lín­ur, ég mun ekki gera það.” (Mbl.is 28.12.2024)

Þau sem trúðu loforðunum og fagurgalanum um okkar minnstu bræður og systur og frösunum um fátækt fólk, staðfestu í málefnum flóttamanna og andstöðu við Evrópusambandsaðild og greiddu flokki fólksins atkvæði sín í nýliðnum kosningum munu verða fyrir vonbrigðum. Þau hin sömu geta í næstu kosningabaráttu sem er skammt undan verið viss um að loforð flokks fólksins eru ekki eiginleg loforð heldur háð því að flokkurinn fái hreinan meirihluta á þingi sem er ekki að fara að gerast. Nú eða því sem segir í texta Stuðmanna: „Bara þegar hentar mér.” Það væri ráð fyrir formann og prókúruhafa flokks fólksins sem brestur í söng nær hvenær sem er öðrum til ama og aulahrolls að kyrja þessa hendingu þegar hún étur ofan í sig hvert kosningaloforðið af öðrum. Flokkur fólksins mun ekki ríða feitum hesti frá næstu Alþingiskosningum sem verða fyrr en varir. Þvert á móti mun flokkurinn gjalda svika sinna og fylgi hans hrynja eða með orðum séra Hallgríms:

„Sjá hér hvað illan enda

ótryggð og svikin fá.

Júdasar líkar lenda

leiksbróður sínum hjá.

Andskotinn illskuflár

enn hefur snöru snúna

snögglega þeim til búna

sem fara með fals og dár.”

Það er rétt fyrir öryrkja og eldra fók að fylgjast vel með framlagningu fyrstu fjármálaáætlunar nýrrar ríkisstjórnar og næstu fjárlögum. Þar mun birtast hin rétti skilningur flokks fólksins á kjörum og stöðu eldra fólks og öryrkja. Þá er rétti tíminn fyrir öryrkja og eldri borgara að fjölmenna að félagsmálaráðuneytinu og krefjast réttlætis.

Höfundur er varaþingmaður Miðflokksins og situr í stjórn flokksins.




Skoðun

Sjá meira


×