Appelsínugular viðvaranir og heiðar lokaðar Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 24. desember 2024 07:29 Ökumenn eru hvattir til að skoða vef vegagerðarinnar vel áður en haldið er í ferðalag. Vísir/Vilhelm Veðurspá aðfangadags er miður spennandi en samkvæmt henni stefnir í sannkallað jólahret. Búast má við suðvestanátt í dag, 8-15 m/s og hita í kringum frostmark en síðdegis hvessir rækilega.
Á vef Veðurstofunnar hafa verið gefnar út gular og appelsínugular viðvaranir víða um land frá klukkan sex. Appelsínugular viðvaranir verða í gildi í Faxaflóa, á Suðurlandi og á Breiðafirði þar til upp úr hádegi á morgun. Þá verða gular viðvaranir í gildi á höfuðborgarsvæðinu, Suðausturlandi, Vestfjörðum og á Ströndum og Norðurlandi eystra í nótt og fram eftir degi á morgun. Á vef Vegagerðarinnar kemur fram að búið er að loka vegum víða um land vegna veðurs. Bæði Holtavörðuheiði og Öxnadalsheiði hefur verið lokað en unnið er að mokstri á þeirri síðarnefndu. Hellisheiði eystri hefur jafnframt verið lokað. Ökumenn eru hvattir til að skoða vefinn umferdin.is vel áður en lagt er af stað og meðan á ferðalagi stendur. Í hugleiðingum veðurfræðings á vef veðurstofunnar segir að gera megi ráð fyrir sunnan og suðvestan strekkings vindi í dag með snjó- eða slydduéljum, en þurrt verði að mestu um landið norðaustanvert. Síðdegis dýpki lægð fyrir vestan land. Þá herði á vindinum og í kvöld er búist við suðvestan hvassviðri eða storm með dimmum éljum á sunnan- og vestanverðu landinu. En heldur hægari vindi á Norðaustur- og Austurlandi. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag (jóladagur):Suðvestan 15-23 m/s með dimmum éljum, en úrkomulítið norðaustan- og austanlands. Frost 0 til 6 stig.Á fimmtudag (annar í jólum):Suðvestan 10-18 og slydda eða snjókoma með köflum, en þurrt að kalla á Austurlandi. Hiti kringum frostmark.Á föstudag:Suðvestan 8-15 og él, en úrkomulítið norðaustantil. Kólnar í veðri.Á laugardag:Norðanátt og snjókoma eða él, en þurrt sunnan heiða. Frost 2 til 10 stig.Á sunnudag:Norðaustlæg átt og kalt í veðri. Dálítil él norðaustantil og við suðurströndina, annars þurrt.Á mánudag:Norðaustanátt og víða él.
Veður Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Fleiri fréttir Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Sjá meira