Samkomulagið um lánveitinguna dregur verulega úr áhættunni sem fylgir rafmyntarstefnu salvadorskra stjórnvalda, að sögn gjaldeyrissjóðsins. Það felur meðal annars í sér að stjórnvöld leyfi eigendur fyrirtækja að ákveða sjálfir hvort þeir taki við bitcoin eða ekki.
Lán AGS til El Salvador er ætlað að styðja við efnahag Miðameríkuríkisins. Sjóðurinn hafði sagt að stefna landsins í rafmyntarmálum væri steinn í götu þess að það fengi efnahagslega aðstoð, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. El Salvador var á barmi greiðslufalls vegna hruns á verði rafmynta árið 2022.
Þrátt fyrir það er Nayib Bukele, forseti El Salvador, ekki af baki dottinn í herferð sinni til að rafmyntavæða landið. Hann hefur fagnað styrkingu bitcoin í kjölfar kosningasigurs Donalds Trump í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. Rafmyntin hefur verið í hæstu hæðum undanfarna daga.
Bukele hefur verið forseti El Salvadors frá 2019. Stjórnarfar í forsetatíð hans hefur í vaxandi mæli færst í valdboðsátt. Mannréttindasamtök hafa meðal annars gagnrýnt herlög sem hann setti á og gerræðisleg vinnubrögð lögreglu í stríði Bukele við ofbeldisfull fíkniefnagengi landsins. Þá saka þau Bukele um bandamann hans um að afnema kerfisbundið allar hömlur á völd hans sem forseta.