Viðskipti innlent

Stýrivextir halda á­fram að lækka

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Ásgeir Jónsson er seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar.
Ásgeir Jónsson er seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar. Vísir/Vilhelm

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti um 50 punkta og fara þeir því úr því að vera 9 prósent í 8,5 prósent. Þetta er önnur stýrivaxtalækkunin í röð en með síðustu stýrivaxtaákvörðun í byrjun október voru vextirnir lækkaðir um 25 punkta og var það í fyrsta sinn síðan í árslok 2020 sem stýrivextir lækkuðu.

Greint er frá þessu í yfirlýsingu peningastefnunefndar sem birt var núna klukkan 8:30.

„Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,5 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 8,5%. Verðbólga hefur hjaðnað undanfarið og mældist 5,1% í október. Hjöðnun verðbólgu er á breiðum grunni og undirliggjandi verðbólga hefur einnig minnkað. Þá hafa verðbólguvæntingar almennt lækkað og raunvextir því hækkað.

Áhrifa þétts peningalegs taumhalds gætir áfram í efnahagsumsvifum og hægt hefur á vexti innlendrar eftirspurnar. Atvinnuleysi heldur áfram að þokast upp og horfur eru á að það dragi úr spennu í þjóðarbúinu þótt það gerist hægar en áður var talið.

Þrálát verðbólga og verðbólguvæntingar yfir markmiði kalla þó á varkárni. Áfram þarf því að viðhalda hæfilegu aðhaldsstigi til þess að koma verðbólgu í markmið innan ásættanlegs tíma.

Mótun peningastefnunnar næstu misseri mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga,“ segir í yfirlýsingunni. 

Ákvörðun peningastefnunefndar um lækkun stýrivaxta er nokkuð í takt við það sem greiningardeildir bankanna höfðu spáð. Flestir greinendur höfðu í aðdraganda ákvörðunarinnar gert ráð fyrir að vaxtalækkunarferlið myndi halda áfram og spáðu greiningardeildir Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans því til að mynda allar að vextir yrðu lækkaðir um hálft prósentustig.

Klukkan 9:30 á eftir hefst síðan kynningarfundur peningastefnunefndar þar sem Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, Rannveig Sigurðardóttur, varaseðlabankastjóri peningastefnu og staðgengill formanns og Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, gera grein fyrir yfirlýsingu nefndarinnar og kynna efni Peningamála, rits Seðlabankans. Hægt verður að fylgjast með kynningunni í spilaranum hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×