Skoðun

Fram­boð er eina leiðin

Eiríkur St. Eiríksson skrifar

Það er valtað yfir öryrkja og eldri borgara á hverjum degi. Kosningaloforðin eru samstundis svikin. Hvar eru forystumenn Samtaka eldri borgara og ÖBÍ? Uppteknir af því að slétta úr gömlu Framsóknarskírteinunum sínum eða pressa gömlu stuttbuxurnar sínar frá því að þeir voru í Heimdalli?

Nú er kominn tími til að þetta góða fólk rífi sig upp á rassgatinu og átti sig á því að kosningaloforðin, sem gefin verða korteri fyrir kosningar, verða svikin áður en haninn galar þrisvar. Mér telst til að það séu fjórir þingmenn á Alþingi sem hafa einhvern skilning á málefnum öryrkja og eldri borgara. Þessir þingmenn eru allir í stjórnarandstöðu og geta talað sig bláa í framan án þess að nokkuð gerist. Öryrkjar og eldri borgarar eru fallbyssufóður stjórnmálamanna og landið virðist standa og falla með því að þessum hópum verði ekki hleypt úr fátækragildrunni.

Þar sem hugur minn stefnir vestur fyrir fjall þá sótti ég um aðild að FEB (félagi eldri borgara í Reykjavík) á dögunum. Ég gat ekki varist brosi þegar ég las póst frá FEB, sem mér barst af því tilefni. Þar voru mér kynntar einhverjar hugmyndir um hvernig best væri að spara og ávaxta sitt pund. Í einfeldni minni taldi ég mig hafa komist að því að skjólstæðingar Tryggingastofnunar ríkisins mættu ekki spara, a.m.k. ekki fyrir sjálfa sig. Eins og af hverri annarri ávöxtun á bankareikningi hirðir ríkið 22% í fjármagnstekjuskatt. TR lítur á ávöxtun sem hverjar aðrar tekjur og hirðir megin partinn af eftirstöðvunum með því að lækka ellilífeyrinn. Skjólstæðingar TR mega vissulega spara – en aðallega fyrir ríkið. Reyndar er kerfið orðið svo flókið að flokkur manna hjá TR gerir fátt annað en að rýna í stagbættar lagadruslur til þess að fólk á skrifstofum TR vítt og breitt um landið geti svarað skjólstæðingum stofnunarinnar.

Fyrir öryrkja og eldri borgara til að fá leiðréttingu mála sinna og þau kjör, sem þessir hópar eiga rétt á, er aðeins ein leið fær. Framboð í næstu kosningum til Alþingis í öllum kjördæmum. Ef núverandi forysta er svo skyni skroppin að halda að guð búi í gufustraujárninu þarf einfaldlega að skipta henni út. Það er til fullt af frambærilegu fólki sem getur talað máli okkar á þingi. Gleymum heldur ekki unga fólkinu. Það á ekki skilið þá framtíð sem valdaeilítan hefur teiknað upp fyrir það.

Höfundur er fyrrverandi blaðamaður, öryrki og eldri borgari




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×