Víða rigning með köflum Atli Ísleifsson skrifar 2. október 2024 07:15 Hiti verður víða á bilinu fimm til ellefu stig. Vísir/Vilhelm Hægfara lægð á Grænlandshafi stjórnar veðrinu í dag þar sem áttin verður suðvestlæg, yfirleitt gola eða kaldi og rigning með köflum. Þó má gera ráð fyrir að þurrt verði að mestu á Suðaustur- og Austurlandi fram undir kvöld.
Hægfara lægð á Grænlandshafi stjórnar veðrinu í dag þar sem áttin verður suðvestlæg, yfirleitt gola eða kaldi og rigning með köflum. Þó má gera ráð fyrir að þurrt verði að mestu á Suðaustur- og Austurlandi fram undir kvöld. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að hiti verði víða á bilinu fimm til ellefu stig. Í kvöld snýst svo í vaxandi norðaustanátt við norðurströndina. „Norðaustan 8-15 m/s á morgun og áfram vætusamt, en snjókoma á heiðum norðaustanlands. Eftir hádegi dregur smám saman úr úrkomu í flestum landshlutum og það bætir í vind syðst á landinu. Hiti 1 til 9 stig að deginum, mildast suðvestantil. Norðaustan og austan kaldi eða strekkingur á föstudag, en hvassviðri syðst á landinu. Skýjað og úrkomulítið austanlands, en á vesturhelmingi landsins er útlit fyrir bjart og fallegt veður,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 12.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Norðaustan 8-15 m/s. Rigning með köflum, en snjókoma á heiðum norðaustanlands. Úrkomuminna seinnipartinn og bætir í vind syðst á landinu. Hiti 1 til 8 stig að deginum, mildast suðvestantil. Á föstudag: Norðaustan og austan 8-15, en 13-20 syðst. Skýjað austanlands og úrkomulítið, en bjart að mestu á vesturhelmingi landsins. Hiti breytist lítið. Á laugardag: Norðaustan og austan 8-15, en hvassara við suðausturströndina. Skýjað og líkur á stöku éljum, en víða þurrt og bjart á Suður- og Vesturlandi. Hiti 0 til 7 stig yfir daginn, mildast suðvestanlands. Á sunnudag og mánudag: Ákveðin norðaustanátt og dálítil él, en bjartviðri sunnan- og vestantil. Hiti 0 til 6 stig. Á þriðjudag: Norðlæg átt og él, en þurrt sunnan heiða. Kólnar heldur.
Veður Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Fleiri fréttir Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Sjá meira