Innlent

Á­nægður með frum­varp sjálf­stæðis­manna

Bjarki Sigurðsson skrifar
Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segir það góða hugmynd að afnema stimpilgjöld.
Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segir það góða hugmynd að afnema stimpilgjöld. Vísir/Einar

Verkalýðshreyfingin fagnar frumvarpi sjálfstæðismanna um afnám fasteignagjalda. Formaður VR segir útilokað að þingmenn fái nokkurn tímann sæti við borðið við gerð kjarasamninga.

Nú í tíunda sinn reyna þingmenn Sjálfstæðisflokksins að koma frumvarpi í gegn um afnám stimpilgjalds við kaup einstaklinga á fasteignum. Málið hefur aldrei komist lengra en í fyrstu umræðu en sjálfstæðismenn eru bjartsýnir á að ná þessu í gegn.

Sem stendur þurfa kaupendur íbúðarhúsnæðis að greiða 0,8 prósent kaupverðs í stimpilgjald sem þingmennirnir segja úrelt og óþarfi. Formaður VR segir verkalýðshreyfinguna hrifna af þessari hugmynd.

„Hins vegar mætti, ef þingmönnum stjórnarflokkanna er alvara í því að bæta stöðu á húsnæðismarkaði, þá mætti þessu fylgja neikvæðir hvatar fyrir lögaðila og þá sem eru að kaupa margar fasteignir. Að það séu neikvæðir skattalegir hvatar til staðar þar þannig að húsnæðið sem kemur á markaði sé eingöngu þá ætlað almenningi og þeim sem sárvantar að komast í öruggt húsaskjól,“ segir Ragnar.

Þingmenn fái aldrei sæti við kjarasamningsborðið

Vilhjálmur Árnason, fyrsti flutningsmaður frumvarpsins, sagði í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar um þetta mál að mögulega hafi vantað að leggja áherslu á afnám stimpilgjalda við kjarasamningsborðið. Þingmenn hafi því miður ekki sæti við borðið þó kjarasamningar hafi mikil áhrif á störf þingsins.

„Hugmynd um að þingmenn komi með beinum hætti að kjarasamningum er auðvitað fráleit hugmynd og myndi aldrei ganga upp. Við værum örugglega ekki búin að gera kjarasamning síðustu tíu árin ef svo væri,“ segir Ragnar.

Sérðu fyrir þér einhverskonar fyrirkomulag þar sem þingmenn hafa eitthvað að segja um kjarasamningagerð, þótt þeir myndu ekki sitja beint við borðið?

„Að sjálfsögðu ekki. Þetta er flókið ferli og viðsemjendur okkar eru auðvitað Samtök atvinnulífsins, eða þau fyrirtæki sem eru þar undir. Þetta er hugmynd sem myndi aldrei ganga upp. Útilokað, útilokað,“ segir Ragnar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×