Um sjö stiga frost mældist í Eyjafirði í nótt Atli Ísleifsson skrifar 13. september 2024 07:17 Það var kalt í nótt. Vísir/Vilhelm Lítil hæð er nú yfir landinu og verður víða léttskýjað og sólríkt í dag og vindur fremur hægur.
Á vef Veðurstofunnar kemur fram að það hafi verið kalt í nótt og mest mældist 6,8 stiga frost á Torfum í Eyjafirði og Möðruvöllum í Hörgárdal og 6,5 stiga frost á Þingvöllum. Það hlýnar í sólinni í dag og hiti verður á bilinu 5 til 12 stig. Hlýjast verður á Suðurlandi. „Í kvöld og nótt nálgast lægð úr suðri, það hvessir af austri sunnanlands og fer að rigna þar. Lægðin fer norðaustur skammt fyrir sunnan land á morgun. Þá er spáð allhvassri norðaustanátt, en hvassviðri eða stormi á Suðausturlandi og syðst á landinu fram yfir hádegi. Rigning um mest allt land, en slydda í innsveitum norðaustanlands. Á sunnudag er síðan útlit fyrir norðanátt með vætu og svölu veðri á Norður- og Austurlandi, en birtir upp sunnan- og vestanlands,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Austan og norðaustan 10-18 m/s, en hvassara syðst á landinu fram yfir hádegi. Víða rigning og lengst af talsverð úrkoma á austanverðu landinu. Hiti 3 til 13 stig, svalast í innsveitum norðaustanlands. Á sunnudag: Norðan og norðvestan 8-15. Rigning með köflum á Norður- og Austurlandi, en bjartviðri sunnan- og vestanlands. Hiti 3 til 12 stig, hlýjast á Suðausturlandi. Hægari vindur um kvöldið og úrkomuminna. Á mánudag: Gengur í suðaustan 10-18 með rigningu, en lengst af þurrt norðaustanlands. Hlýnandi veður. Á þriðjudag: Stíf sunnanátt með súld og rigningu, talsverð úrkoma á sunnanverðu landinu. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast norðaustantil. Á miðvikudag: Suðvestanátt með skúrum, en léttskýjað norðaustan- og austanlands. Hiti 6 til 13 stig, hlýjast á Austurlandi. Á fimmtudag: Suðlæg átt með lítilsháttar vætu, en þurrt og bjart á Norður- og Austurlandi. Hiti 7 til 13 stig.
Veður Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Fleiri fréttir Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Sjá meira