Hreyfill gerir sátt við Samkeppniseftirlitið eftir kvörtun Hopp Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 28. ágúst 2024 11:32 Samkeppniseftirlitið og leigubílafyrirtækið Hreyfill svf. hafa gert með sér sátt. Samkeppniseftirlitið og leigubílafyrirtækið Hreyfill svf. hafa gert með sér sátt vegna háttsemi Hreyfils sem fólst í því að banna leigubifreiðastjórum sem eru í þjónustu hjá Hreyfli að nýta sér þjónustu annarra leigubifreiðastöðva. Upphaf málsins má rekja til kvörtunar Hopp leigubílum ehf. til eftirlitsins vegna háttsemi Hreyfils. Í sáttinni felst meðal annars að Hreyfill muni ekki hindra að leigubifreiðastjórar sem keyra fyrir stöðina nýti sér einnig aðra þjónustuaðila sem sinna leigubílaakstri.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu en með sáttinni lýkur rannsókn stofnunarinnar á Hreyfli. Þá mun Hreyfill samkvæmt sáttinni einnig gera aðrar nauðsynlegar breytingar, annars vegar á samþykktum félagsins og hins vegar á stöðvarreglum þess með það að leiðarljósi að tryggja samræmi við þær skyldur sem hvíli á Hreyfli samkvæmt samkeppnislögum að því er segir í tilkynningunni. Líkt og áður segir hófst málið með kvörtun Hopp leigubíla ehf. þar sem kvartað var undan framangreindri háttsemi Hreyfils. Vegna þeirrar kvörtunar tók eftirlitið bráðabirgðaákvörðun í júlí í fyrra sem kveður á um “sennilegt brot brot Hreyfils svf. gegn samkeppnislögum“ og Hreyfli gert að láta af umræddri háttsemi sem ítarlega er rakin í bráðabirgðaákvörðuninni. Þá beinir Samkeppniseftirlitið þeim tilmælum til leigubifreiðastöðva sem starfa á Íslandi „að gæta að því að samningar þeirra við leigubifreiðastjóra feli ekki sér ólögmætar samkeppnishindranir.” Sáttina í heild sinni má lesa hér.
Leigubílar Samkeppnismál Samgöngur Mest lesið Verðbólga hjaðnar hressilega Viðskipti innlent Óvænt verðbólguhjöðnun leiði vonandi til vaxtalækkunar Viðskipti innlent Sögðu upp öllum starfsmönnum Vélfags sem eftir voru Viðskipti innlent Hægt að fækka veikindadögum með réttu raka- og hitastigi Viðskipti innlent Kallar eftir aukafundi peningastefnunefndar Viðskipti innlent Funda með starfsmönnum Vélfags um framhaldið Viðskipti innlent Framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka hættir Viðskipti innlent Gatnagerðargjöld hækkuð um tvo þriðju að jafnaði Viðskipti innlent Pétur Freyr ráðinn framkvæmdastjóri Íþöku fasteigna Viðskipti innlent Vilja vinna magnesíummálm úr íslenskum sjó Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sögðu upp öllum starfsmönnum Vélfags sem eftir voru Gatnagerðargjöld hækkuð um tvo þriðju að jafnaði Óvænt verðbólguhjöðnun leiði vonandi til vaxtalækkunar Kallar eftir aukafundi peningastefnunefndar Verðbólga hjaðnar hressilega Funda með starfsmönnum Vélfags um framhaldið Hægt að fækka veikindadögum með réttu raka- og hitastigi Pétur Freyr ráðinn framkvæmdastjóri Íþöku fasteigna Kúabændur skora á ráðherra að falla frá breytingum Framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka hættir Vilja vinna magnesíummálm úr íslenskum sjó Sólveig Kolbrún og Harpa Björg til Iðunnar Vélfag áfrýjar dómnum Vill láta hart mæta hörðu Veipverslun fyllir í skarð veitingastaðar Stofnar félag um olíuleit Ríkið sýknað af kröfum Vélfagsmanna Fengið jákvæð viðbrögð frá Evrópusambandinu Hegðun Norðuráls vonbrigði og Orkuveitan fari fram á fulla greiðslu Makrílveiðimenn töpuðu baráttu sinni við ríkið Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Hjöðnun verðbólgu í sjónmáli Eigandi Vélfags talinn tengjast rússnesku leyniþjónustunni „Þetta eru auðvitað vonbrigði“ Fá grænt ljós á kaupin á Gæðabakstri Hætta rekstri fiskmjölsverksmiðju og tólf missa vinnuna GK Reykjavík minnkar við sig Minni eignamyndun en fleiri komist í eigið húsnæði með nýrri lausn á markaði Kristján lætur af störfum hjá Samherja Steinar Waage opnar á Akureyri Sjá meira