Vindhviður gætu náð allt að 35 m/sek Ólafur Björn Sverrisson skrifar 21. ágúst 2024 07:46 Myndin er úr safni. vísir/vilhelm Í dag má reikna með hvössum vindi með suðurströndinni. Vinhviður gætu náð 30-35 m/sek í Mýrdal og undir Eyjafjöllum um og upp úr hádegi. Sama gildir um Öræfi skammt austan Skaftafells.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Einari Sveinbjörnssyni veðurfræðingi Vegagerðarinnar. Á vef Veðurstofunnar er nú í gildi gul viðvörun á Suðausturlandi vegna norðaustan hvassviðri. „Norðaustan 13-20 m/s vestantil á svæðinu og snarpar vindhviður við fjöll, t.d. í Mýrdal og Öræfum. Getur verið varasamt fyrir ökutæki sem eru viðkvæm fyrir vindi,“ segir í viðvöruninni. Ástæða vindstrengsins er nokkuð djúp lægð til austurs fyrir sunnan land, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings. Gul viðvörun á Suðausturlandi.veðurstofan „Á sunnanverðu landinu verður rigning viðloðandi. Í öðrum landshlutum verður skýjað og búast má við dálítilli vætu öðru hvoru, einkum þegar líður á daginn. Hiti 6 til 12 stig í dag og því svalara en var í sólinni sunnan heiða í gær.“ Á morgun fimmtudag gera spár ráð fyrir að áðurnefnd lægð verði komin fyrir austan land. „Þá gengur í norðan stinningskalda nokkuð víða og bætir heldur í vindinn þegar líða fer að kvöldi. Á sunnanverðu landinu verður þurrt að kalla, en í öðrum landshlutum rigning eða súld og búast má við talsverðri úrkomu norðaustantil. Á föstudag er síðan útlit fyrir allhvassan eða hvassan norðan vindstreng yfir vesturhelmingi landsins, en hægari vindur austantil. Meginþungi rigningarinnar færist yfir á Norðurland og Vestfirði.“
Veður Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Fleiri fréttir Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Sjá meira