Færa börnin eftir að skemmdir í leikskólanum komu í ljós Magnús Jochum Pálsson skrifar 24. júlí 2024 17:13 Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs, sendi bréf á foreldra barna Brákarborgar vegna tilfærslu á starfsemi skólans og framkvæmda í húsnæðinu næstu mánuði. Reiknað álag frá ásteypulagi og torfi á þaki leikskólans Brákarborgar var meira en tilgreint var á teikningum. Sprungur voru byrjaðar að myndast í veggjum og dyrakarmar teknir að skekkjast áður en mistökin uppgötvuðust. Næstu mánuði verða framkvæmdir í húsnæðinu og starfsemi leikskólans flutt í húsnæði í Ármúla.
Þetta kemur fram í bréfi sem Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, sendi á foreldra barna við Brákarborg í dag, 24. júlí 2024 og Vísir hefur undir höndunum. Brákarborg opnaði við Kleppsveg, þar sem áður var húsnæði Adams og Evu, síðsumars 2022 og hlaut þá hönnunarverðlaunin Grænu skófluna. Ýmsum foreldrum gramdist verðlaunaveitingin vegna þess að skólinn var þá ekki enn tilbúinn. Börnin flutt í Ármúla og upphafi skólaárs seinkar Ólöf Örvarsdóttir skrifar bréfið til að upplýsa foreldra um tímabundnar breytingar á starfsemi leikskólans þegar sumarlokun lýkur og til að fara yfir hvað valdi þessum tilfæringum. Hún segir að tekið verði á móti öllum börnunum eftir sumarleyfi í „húsnæði sem áður hýsti grunnskóla í Ármúla 28-30“. Þar er átt við þegar um 400 Hagskælingar þurftu að vera við nám í húsnæðinu í um tvö ár vegna myglu í Hagaskóla. Nú sé unnið að því að standsetja húsið fyrir leikskólastarf og því hefjist starf skólans tveimur dögum seinna en áætlað var, eða mánudaginn 12. ágúst. Sprungur í veggjum og skakkir dyrakarmar vegna misreiknings Ólöf fer síðan yfir hvað veldur þessum tilfærslum í bréfinu. Umhverfis- og skipulagssvið hafi nýlega ákveðið að fara í ítarlega skoðun á burðarvirki Brákarborgar eftir að fólk tók eftir að hárfínar sprungur höfðu myndast á nokkrum veggjum og hurðir skekkst í dyrakörmum. „Mat sérfræðinga hjá verkfræðistofunni Verkís sem fengin var til að taka út burðarvirkið, var að reiknað álag frá ásteypulagi og torfi á þakinu væri meira en tilgreint var á teikningum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í minnisblaði sem okkur var kynnt þann 9. júlí síðastliðinn. Samkvæmt minnisblaðinu er það mat Verkís að þakið eins og það stendur í dag uppfylli ekki gildandi hönnunarstaðla,“ skrifar Ólöf í bréfinu. Þegar niðurstaðan lá fyrir leitaði Reykjavíkurborg til verkfræðistofunnar VSÓ til að sannreyna niðurstöðu Verkís og skoða burðarvirkið enn frekar með tilliti til ýtrustu öryggiskrafna. VSÓ staðfesti niðurstöðu Verkís og kynnti niðurstöðu sína fyrir starfsfólki borgarinnar síðastliðinn fimmtudag, 18. júlí. Því sé ljóst að mistök voru gerð í hönnun og/eða framkvæmd við Brákarborg. Skoðað hvar ábyrgðin liggi Þá kemur fram í bréfinu að Reykjavíkurborg hafi þegar sent öllum verktökum og ráðgjöfum sem komu að verkinu formlegt bréf þar sem tilkynnt er um mögulega hönnunar- og eða framkvæmdagalla og að skoðað verði hvar ábyrgðin liggi. Fréttirnar séu gríðarlega mikil vonbrigði og áfall að komast að því að öllum stöðlum hafi ekki verið fylgt þegar kom að burðarvirkinu. „Það liggur fyrir til hvaða aðgerða þarf að grípa. Strax í gær var hafist handa við að fjarlægja torfið á þakinu og í framhaldi verður sett annað þakefni. Þá er unnið að því að hanna styrkingar sem settar verða upp innanhúss og einnig breytingar á þaki tengibyggingar. Við leggjum áherslu á að þessar framkvæmdir gangi fljótt og vel fyrir sig,“ skrifar Ólöf. Með þeim breytingum sem farið verði í á næstu dögum og mánuðum verði tryggt að öllum gildandi öryggiskröfum verði mætt. Nákvæm tímaáætlun liggi ekki enn fyrir Loks segir Ólöf að rétt sé að taka fram að þau ummerki sem leiddu til þess að farið var í skoðun á burðarvirkinu séu talin ótengd þeim mistökum sem hér var áður lýst. Hún á væntanlega þar við um sprungurnar og skökku dyrakarmana. Einnig segir hún að flot sem var undir gólfdúk sé að losna og skoðað verði hvernig ábyrgð á því liggi og unnið að því samhliða öðrum framkvæmdum. Unnið sé í þéttu samstarfi við Sólrúnu Óskarsdóttur leikskólastýru, starfsfólk Brákarborgar og annað starfsfólk hjá skóla- og frístundasviði. Ekki sé enn hægt að gefa upp nákvæma tímaætlun fyrir framkvæmdir en foreldrar verði upplýstir eftir því sem verkinu vindur fram.
Reykjavík Leikskólar Börn og uppeldi Skóla- og menntamál Mistök við byggingu Brákarborgar Tengdar fréttir „Gerum eitthvað af viti áður en allir leikskólakennarar ganga út“ Leikskólakennari í Brákarborg gagnrýnir vinnubrögð borgarinnar við flutning í nýtt húsnæði. Leikskólakennarar hafi flutt í húsnæðið, reynt að taka það helsta upp úr kössum og hafið aðlögun nýrra nemenda á sama tíma. Framkvæmdir séu enn í fullum gangi og efast hún um að skrifstofufólk borgarinnar myndi láta bjóða sér slíkar vinnuaðstæður. 2. október 2022 07:00 Verður hluti af leikskólanum Brákarborg Stefnt er að því að stjórnun og rekstur nýs leikskóla við Kleppsveg 150-152 muni heyri undir leikskólann Brákarborg sem er til húsa í Brákarsundi. 27. janúar 2021 10:26 Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Sjá meira
„Gerum eitthvað af viti áður en allir leikskólakennarar ganga út“ Leikskólakennari í Brákarborg gagnrýnir vinnubrögð borgarinnar við flutning í nýtt húsnæði. Leikskólakennarar hafi flutt í húsnæðið, reynt að taka það helsta upp úr kössum og hafið aðlögun nýrra nemenda á sama tíma. Framkvæmdir séu enn í fullum gangi og efast hún um að skrifstofufólk borgarinnar myndi láta bjóða sér slíkar vinnuaðstæður. 2. október 2022 07:00
Verður hluti af leikskólanum Brákarborg Stefnt er að því að stjórnun og rekstur nýs leikskóla við Kleppsveg 150-152 muni heyri undir leikskólann Brákarborg sem er til húsa í Brákarsundi. 27. janúar 2021 10:26