Tekur við fjármálunum hjá Securitas Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. júlí 2024 10:51 Einar Péturson er nýr framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá Securitas. Einar Pétursson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá Securitas. Einar starfaði áður við fyrirtækjaráðgjöf hjá Landsbankanum.
Einar Pétursson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá Securitas. Einar starfaði áður við fyrirtækjaráðgjöf hjá Landsbankanum. Hann er með B.Sc. gráðu í fjármálaverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu í fjármálum frá Háskólanum í Lundi, Svíþjóð. „Þekking hans og reynsla mun efla starfsemina í þeim spennandi verkefnum sem fram undan eru hjá félaginu,“ segir í tilkynningu frá Securitas. Einar hefur störf á næstu vikum. Einnig hefur sú breyting verið gerð á skipuriti félagsins að Guðrún Inga Guðlaugsdóttir, sem starfað hefur sem mannauðsstjóri frá árinu 2019 hefur verið ráðin framkvæmdastjóri yfir nýju sviði Mannauðs og menningar. Undir mannauði og menningu falla mannauðsmál ásamt umbóta- og gæðamál og sjálfbærnimálefni félagsins. „Með breytingunni leggur félagið enn frekari áherslu á miðlægri nálgun mannauðsmála, umbótahugsun og samfélagslegri ábyrgð. Guðrún Inga er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri, Stjórnendamarkþjálfi frá Opna Háskólanum í Reykjavík og diploma í stjórnun og starfsmannamálum frá Háskólanum í Reykjavík,“ segir í tilkynningunni. „Það er ákaflega spennandi að fá Einar til liðs við okkur og erum við sannfærð um að reynsla hans og þekking komi til með að reynast Securitas vel. Mannauður og menning eru mikilvægir innviðir í starfsemi félagsins og með þá víðtæku reynslu innan félagsins sem Guðrún Inga hefur erum við að koma þessum málaflokkum í góðar hendur,“ segir Jóhann Gunnar Jóhannsson, forstjóri Securitas.
Vistaskipti Landsbankinn Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira