Hilmar Smári semur við Stjörnuna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júlí 2024 20:45 Hilmar Smári Henningsson snýr aftur í Garðabæinn og styrkir lið Stjörnunnar mikið. @stjarnankarfa Stjörnuliðið er til alls líklegt í Subway deild karla í körfubolta á næsta tímabil en Stjarnan sagði frá frábærum liðstyrk í kvöld.
Landsliðsmaðurinn Hilmar Smári Henningsson hefur ákveðið að semja við Stjörnuna en hann spilaði í Þýskalandi í vetur. Hilmar Smári þekkir vel til hjá Stjörnunni en hann spilaði með liðinu tímabilið 2021-22. Þá var hann með 12,0 stig og 3,9 stoðsendingar að meðaltali í leik. Hann kemur til liðsins frá Eisbaren Bremerhaven í Þýskalandi. Hilmar lék síðast með Haukum hér á landi en það er hann uppeldisfélag. Hilmar var með 18,0 stig og 4,2 stoðsendingar að meðaltali í leik tímabilið 2022-23 og var þá einn besti íslenski leikmaður deildarinnar. Það er ljóst að þetta er svakalegur liðstyrkur sem Stjarnan er að fá og annar landsliðsmaður sem félagið fær heim úr atvinnumennsku á stuttum tíma. Áður ákvað Orri Gunnarsson að spila með liðinu en hann lék í Austurríki síðasta vetur. Baldur Þór Ragnarsson tekur við liðinu af Arnari Guðjónssyni. Hilmar hefur einnig reynt fyrir sér á Spáni og með Þór Akureyri. „Það er mikill fengur fyrir Stjörnuna að fá Hilmar Smára til liðs við okkur. Hann hefur sýnt mikil gæði í leik sýnum og við teljum hann fullkomið púsl í okkar lið,“ sagði Einar Karl, formaður körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar, við miðla félagsins. „Ég er mjög spenntur fyrir komandi tímabili í Garðabænum. Ég tel mig vera mjög góða viðbót inn í hópinn sem Baldur hefur nú þegar sett saman og verða háleit markmið sett fyrir veturinn” sagði Hilmar Smári. View this post on Instagram A post shared by Stjarnan Körfubolti (@stjarnankarfa)
Subway-deild karla Stjarnan Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fleiri fréttir Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Sjá meira