Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Lovísa Arnardóttir skrifar 15. júní 2024 11:00 Valdimar segir staðsetningu kaffistofunnar algert lykilatriði. Samhjálp sé opin fyrir ábendingum. Vísir/Vilhelm Samhjálp leitar nú að nýju húsnæði fyrir Kaffistofu Samhjálpar. Kaffistofan hefur verið rekin í Borgartúni frá árinu 2007 en opnaði upprunalega árið 1981 á Hverfisgötu og hefur Kaffistofan því verið starfrækt í meira en 40 ár. Á Kaffistofu Samhjálpar er boðið upp á heitan mat alla daga, allan ársins hring.
Framkvæmdastjóri Samhjálpar, Valdimar Þór Svavarsson, segir mikla þörf á húsnæði sem henti rekstrinum og að best væri að húsnæðið væri miðsvæðis vegna nálægðar við gistiskýlin á Lindargötu og út á Granda. Kaffistofan var fyrst rekin á Hverfisgötu í þessu húsnæði.Aðsend Fram kom í umfjöllun um kaffistofuna í páskablaði Samhjálpar að samtökin hefðu nýlega hlotið styrk frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu til tveggja verkefna, sem sótt var um í september. Annars vegar um fimm milljóna króna rekstrarstyrkur og hins vegar tveggja milljóna króna styrkur til stefnumótunarvinnu vegna flutnings kaffistofunnar á nýjan stað. „Við erum að vinna að þessu hörðum höndum. Við erum búin að skoða nokkur húsnæði en þetta er ekki einfalt mál. Staðsetningin skiptir miklu máli því við viljum vera miðsvæðis og það er ekki mörgum húsum til að dreifa. En að sama skapi er þetta orðið mjög aðkallandi verkefni. Núverandi húsnæðið er komið til ára sinna og aðstaðan ekki góð. Það þarf að gera breytingar,“ segir Valdimar Þór Svavarsson, framkvæmdastjóri Samhjálpar. Unnið í samráði við borgina Hann segir þetta verkefni unnið í góðu samráði við Reykjavíkurborg. Það þurfi að huga að ýmsu við valið eins og samlegð við gistiskýlin í borginni en hópurinn sem til þeirra kemur er sá sami og leitar á kaffistofuna. „Það er kjarnahópurinn og hefur alltaf verið. Þess vegna skiptir máli að staðsetningin sé í takt við hópinn. Að hann geti nýtt sér aðstöðuna,“ segir Valdimar. Kaffistofan er opin frá klukkan tíu á morgnana og til klukkan 17. Hægt er að fá að borða.Vísir/Vilhelm Hann segir það á sama tíma ekkert launungarmál að það hafi fjölgað verulega í hópi þeirra sem leita til þeirra af innflytjendum og hælisleitendum. Fjallað var um það í fréttum sem dæmi í fyrra þegar útlendingalögum breytt og hælisleitendur sviptir þjónustu 30 dögum eftir að þeir fengu endanlega synjun að þeim fjölgaði í þjónustu Samhjálpar, Hjálpræðishersins og annarra félagasamtaka. Á myndinni eru þeir Ivan og Mohammed með Valdimar, lengst til hægri, í eldhúsi kaffistofunnar.Vísir/Vilhelm „Það er ekkert endilega heppilegt að blanda þessum hópum saman og auðvitað ætti að vera stefna og úrræði fyrir innflytjendamálin og svo stefna og úrræði fyrir heimilislausa sem eru í mörgum tilfellum fólk með áfengis- og vímuefnavanda. Við höfum lagt okkur mikið fram við að aðstoða þann hóp í rúm 40 ár og reyndar alla sem til okkar leita“ segir Valdimar. Valdimar segir þau taka við öllum góðum ábendingum um húsnæði sem gæti hentað fyrir reksturinn. Ekkert dagsetur á döfinni Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg styðja þau samtökin í leit sinni að nýju húsnæði en koma ekki með beinum hætti að flutningunum eða leitinni. Í svari til fréttastofu um málið kemur einnig fram að ekki sé á dagskrá að opna dagsetur fyrir heimilislausa karlmenn eins og þeir hafa ítrekað kallað eftir. Reykjavíkurborg og Samhjálp áttu í samstarfi í vetur um framlengdan opnunartíma kaffistofunnar fyrir gesti neyðarskýla um erfiðasta vetrartímann. Mikil aðsókn er í þjónustu kaffistofunnar en húsnæðið er úr sér gengið. Þörf er á betra húsnæði.Vísir/Vilhelm „Þetta var tilraunaverkefni sem varð mjög góð reynsla af, svo það er líklegt að aftur verði gengið til samninga við Samhjálp næsta vetur. Forsvarsfólk Samhjálpar lýsti því á fundi með velferðarráði nýverið að þau eru tilbúin til að ganga aftur til samninga við borgina um slíka vetraropnun,“ segir Hólmfríður Helga Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi á velferðarsviði borgarinnar. Hún segir að hjá borginni sé unnið að því að þrepaskipta þjónustu við einstaklinga með miklar og flóknar þjónustuþarfir. „Markmiðið er að fólk þurfi ekki að reiða sig á neyðarskýli. Lögð er áhersla á að fjölga tímabundnu áfangahúsnæði en það er því ekki stefnt að opnun dagseturs.“
Málefni heimilislausra Reykjavík Fíkn Hælisleitendur Innflytjendamál Félagasamtök Kaffistofa Samhjálpar Tengdar fréttir Allir samningar í höfn til að koma upp neyslurými í Borgartúni Ekkert er því til fyrirstöðu að koma upp neyslurými í Borgartúni, eins og stefnt hefur verið að um nokkra hríð. Teymisstjóri skaðaminnkunar hjá Rauða krossinum segir aðstæður vímuefnanotenda hafa versnað síðustu mánuði eftir að eina neyslurými landsins var lokað. Þetta sé því mikið fagnaðarefni. 11. apríl 2024 20:31 Peningarnir hans Willums í baráttunni við eitrið Heilbrigðisráðherra sagðist í fyrra ætla að verja 225 milljónum til að verjast „ópíóíðafaraldri“ á Íslandi. Í dag er búið að úthluta um 91 milljón í verkefni því tengdu en af þeim er um helmingur í neyslurými. Tveir starfshópar eru starfandi og einn vinnuhópur. 2. apríl 2024 06:45 Mikil aðsókn í neyðarskýli Mikil aðsókn hefur verið í neyðarskýli borgarinnar fyrir heimilislausa síðustu daga að sögn sviðsstjóra Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Hún segir að samningur við Samhjálp um dagdvöl fyrir heimilislausra renni út nú um mánaðamótin og þá taki við önnur úrræði ef þörf krefur. 29. mars 2024 12:30 Ekki eftirsóknarverður staður til að vera á Þegar lögum um útlendinga var breytt vorið 2023 var ákveðið að þau sem hefðu fengið endanlega synjun um alþjóðlega vernd myndu missa rétt á allri þjónustu 30 dögum síðar. Eftir það ætti fólk að yfirgefa landið. Fámennur hópur gerir það ekki og er heimilis- og réttindalaus á Íslandi. 28. febrúar 2024 11:40 Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Fleiri fréttir Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Sjá meira
Allir samningar í höfn til að koma upp neyslurými í Borgartúni Ekkert er því til fyrirstöðu að koma upp neyslurými í Borgartúni, eins og stefnt hefur verið að um nokkra hríð. Teymisstjóri skaðaminnkunar hjá Rauða krossinum segir aðstæður vímuefnanotenda hafa versnað síðustu mánuði eftir að eina neyslurými landsins var lokað. Þetta sé því mikið fagnaðarefni. 11. apríl 2024 20:31
Peningarnir hans Willums í baráttunni við eitrið Heilbrigðisráðherra sagðist í fyrra ætla að verja 225 milljónum til að verjast „ópíóíðafaraldri“ á Íslandi. Í dag er búið að úthluta um 91 milljón í verkefni því tengdu en af þeim er um helmingur í neyslurými. Tveir starfshópar eru starfandi og einn vinnuhópur. 2. apríl 2024 06:45
Mikil aðsókn í neyðarskýli Mikil aðsókn hefur verið í neyðarskýli borgarinnar fyrir heimilislausa síðustu daga að sögn sviðsstjóra Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Hún segir að samningur við Samhjálp um dagdvöl fyrir heimilislausra renni út nú um mánaðamótin og þá taki við önnur úrræði ef þörf krefur. 29. mars 2024 12:30
Ekki eftirsóknarverður staður til að vera á Þegar lögum um útlendinga var breytt vorið 2023 var ákveðið að þau sem hefðu fengið endanlega synjun um alþjóðlega vernd myndu missa rétt á allri þjónustu 30 dögum síðar. Eftir það ætti fólk að yfirgefa landið. Fámennur hópur gerir það ekki og er heimilis- og réttindalaus á Íslandi. 28. febrúar 2024 11:40