„Sem betur fer var leikurinn bara 40 mínútur í dag“ Siggeir Ævarsson skrifar 17. apríl 2024 21:12 Ingvar Þór Guðjónsson, þjálfari Hauka, fer yfir málin með sínum konum Vísir/Pawel Ingvar Þór Guðjónsson, þjálfari Hauka, var ekkert sérlega upplitsdjarfur eftir leik þrátt fyrir að landa 80-78 sigri gegn Stjörnunni. Eftir að hafa náð upp 18 stiga forskoti gekk lítið upp hjá hans konum á lokakaflanum.
Ingvar samsinnti því að leikurinn hefði orðið óþægilega tæpur á lokasprettinum. „Algjörlega. Þær klára leikinn á 21-5 áhlaupi. „Sem betur fer var leikurinn bara 40 mínútur í dag!“ Ingvar vildi ekki endilega meina að vörn Stjörnunnar hefði gert Haukum erfitt fyrir í sókninni. Skotin hafi einfaldlega hætt að detta og þá kallaði hann eftir betri ákvörðunum frá sínum konum. „Örugglega hefur vörnin þeirra eitthvað með þetta að gera. Mér fannst við vera að fá ágætis skot á köflum. Galopin skot sem við vorum ekki að setja niður. Við vorum líka bara með rosalega mikið af skrítnum og slökum ákvörðunum sóknarlega. Við þurfum að skoða það og gera betur í næsta leik. Við sleppum ekki með þetta inni í Ásgarði.“ Þessi sigur var kannski ekki mest sannfærandi heimavallarvörn sem sögur fara af en Ingvar vildi þó ekki lesa of mikið í lokatölurnar. „Á endanum snýst þetta um að ná í sigra. Þegar það er talið upp í lokin skiptir ekki máli hvort það var svona sigur eða stórsigur. Við tökum þennan sigur en þurfum klárlega að halda áfram að bæta okkar leik og gera betur í næsta leik.“ Liðin mætast á ný í Umhyggjuhöllinni í Garðabæ á sunnudaginn og hefst sá leikur kl. 15:00.
Körfubolti Subway-deild kvenna Haukar Mest lesið Segir nýju mennina hjá Liverpool ekkert hafa getað Enski boltinn Sigur í hjarta Muay Thai íþróttarinnar opnar margar dyr Sport Fékk yfir sig vatnsgusu: „Fagna þessu á Gus Gus á morgun“ Íslenski boltinn „Við grípum augnablikið og gerum það mjög vel“ Körfubolti Sjáðu mörkin sem tryggðu Blikum titilinn Íslenski boltinn Semenyo í stuði og Bournemouth upp í annað sætið Enski boltinn Uppgjörið: Breiðablik 3-2 Víkingur | Breiðablik Íslandsmeistari 2025 Íslenski boltinn Uppgjörið: Grindavík - Njarðvík 109-96 | Grindvíkingar unnu í heimkomunni Körfubolti Sláandi xG tölfræði hjá Manchester United Enski boltinn „Verðum nú að fagna þessu aðeins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Við grípum augnablikið og gerum það mjög vel“ Uppgjörið: Grindavík - Njarðvík 109-96 | Grindvíkingar unnu í heimkomunni Martin með nítján stig í fyrsta leik Stólarnir fastir í München De Assis með fjórða íslenska liðinu á fjórum árum Bjóða upp á Frank Booker-árskort Afar ólík viðbrögð hjá Hlyni Bærings og Benna Gumm eftir byrjun þáttarins Uppgjörið: KR - Stjarnan 102-98 | Meistararnir töpuðu í Vesturbænum „Var í vímu þarna í smá stund af gleði og æsingi“ Uppgjörið: ÍA - Þór Þ. 102-92 | Gulir og glaðir byrja á sigri „Þá er erfitt að spila hér“ Uppgjörið: Keflavík - ÍR 92-83| Breyttir tímar hjá Keflvíkingum? „Fannst þetta full mikil brekka“ Uppgjörið: Álftanes - Ármann 121-69 | Löng bið gestanna ekki þess virði Ekkert þriggja stiga skot þegar Ármann spilaði síðast í efstu deild Fannst Þórsarar og Lárus þurfa frí frá hvor öðrum Benedikt gefur Stjörnunni ráð: Alls ekki hringja í eldri bróðurinn „Vorum eiginlega búnar að reka hana í hálfleik“ Uppgjörið: Keflavík - Valur 79-88 |Frábær endurkomusigur hjá Val Beeman gekk frá fyrrum félögum Stólarnir sóttu sigur til Slóvakíu í fyrsta leik Verður sá síðasti í sögunni til að spila í treyju númer sex Jón vísar ummælum Rögnvaldar til föðurhúsanna Kemur dómaranefnd til varnar og hnýtir í Jón og tvíburana Craig Pedersen heldur áfram með íslenska landsliðið Grindvíkingar horfa áfram út fyrir landsteinana KR vann nýliðaslaginn Meistararnir byrja á góðum sigri Uppgjörið: Stjarnan - Njarðvík 64-81 | Reynslan skilaði gestunum sigri „Væri eiginlega kjánalegt að segjast ekki ætla að gera betur“ Sjá meira