Veður skánar á Vestfjörðum en él sunnan- og vestanlands Atli Ísleifsson skrifar 19. mars 2024 07:14 Hiti um eða yfir frostmarki að deginum í dag. Vísir/Vilhelm Hægfara lægð er nú stödd skammt vestur af landinu og benda nýjustu spár til þess að veðrið á Vestfjörðum verði mun skárra í dag en verið hefur. Þó er stutt í hvassa norðaustanátt úti á miðunum og þar lítið að breytast til að hún nái aftur inn á land.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að annars beini lægðin til okkar suðvestlægri átt, víða 10 til 18 metrum á sekúndu þegar líður á morguninn og éljum sunnan- og vestanlands. „Á Norðaustur- og Austurlandi má búast við slyddu eða snjókomu nú í morgunsárið, en eftir hádegi léttir til á þeim slóðum. Hiti um eða yfir frostmarki að deginum. Í fyrramálið verður áttin suðlæg eða breytileg, gola, kaldi eða strekkingur. Stöku él víða um land og vægt frost, en á morgun hlýnar sunnanlands með rigningu eða slyddu. Undir kvöld verður áttin austlæg, víða 10-18 m/s og snjókoma með köflum um landið norðanvert, en þá dregur úr vætu suðvestantil,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Suðlæg eða breytileg átt 5-15 m/s. Stöku él og hiti um eða undir frostmarki, en hlýnar sunnanlands eftir hádegi með rigningu eða slyddu. Austan 10-18 undir kvöld og snjókoma með köflum um landið norðanvert, en dregur úr vætu suðvestanlands. Á fimmtudag: Norðan 10-18 á Vestfjörðum, annars hægari vindur. Snjókoma norðantil, og rigning austanlands, en úrkomulítið um landið suðvestanvert. Hiti um eða yfir frostmarki. Vaxandi norðan- og norðvestanátt undir kvöld og víða snjókoma, en stöku él syðra. Kólnar í veðri. Á föstudag: Norðan 15-23 og snjókoma eða slydda, en úrkomulítið sunnantil. Hiti um eða undir frostmarki. Dregur úr vindi um kvöldið. Á laugardag: Minnkandi norðlæg átt og él, en yfirleitt þurrt á Suður- og Vesturlandi. Frost 0 til 6 stig. Á sunnudag: Austlæg átt. Stöku él og frost 0 til 8 stig, en slydda eða snjókoma með köflum við suðurströndina og hiti rétt yfir frostmarki. Á mánudag: Austlæg átt og él á víð og dreif. Kólnar í veðri.
Veður Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Sjá meira