Óvíst með þátttöku Kanes í stórleiknum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. mars 2024 14:10 DeAndre Kane hefur spilað vel fyrir Grindavík í vetur. vísir/diego Grindvíkingar gætu verið án síns næststigahæsta leikmanns, DeAndre Kane, þegar þeir sækja Keflvíkinga heim í lokaleik 19. umferðar Subway deildar karla í körfubolta í kvöld.
Í Besta sætinu, hlaðvarpi íþróttadeildar Sýnar, greindi Stefán Árni Pálsson, stjórnandi Subway Körfuboltakvölds, að Kane yrði líklega ekki með Grindavík í stórleiknum í kvöld. „Það eru líka tíðindi af þeim leik, að DeAndre Kane verður líklega ekki með. Hann er með sýkingu í eyranu. Hann er í mjög miklu basli með þetta. Hann hefur ekki fengið grænt ljós frá lækni. Það kemur bara í ljós á eftir,“ sagði Stefán Árni um möguleikana á að Kane verði með gegn Keflavík. Hlusta má á Besta sætið í spilaranum hér fyrir neðan. Umræðan um Grindavík hefst á 29:00. Grindavík hefur unnið átta leiki í röð og er í 3. sæti Subway deildarinnar með 24 stig. Keflavík, sem hefur unnið þrjá leiki í röð, er einnig með 24 stig í 5. sæti deildarinnar. Í vetur er Kane með 20,9 stig, 6,1 frákast og 3,5 stoðsendingar að meðaltali í leik. Leikur Keflavíkur og Grindavíkur hefst klukkan 19:15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Subway Körfuboltakvöld er svo á dagskrá eftir leikinn.
Subway-deild karla UMF Grindavík Mest lesið Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Körfubolti Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Íslenski boltinn Andrea býr hjá breskri fjölskyldu sem styður hana til sigurs Golf Tækifæri bjóðist í fjarveru Sveindísar í lykilleik dagsins Fótbolti Þrjár opnunarhátíðir á HM og stórstjörnur á þeim öllum Fótbolti Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Körfubolti Allur leikmannahópurinn saman í þjóðsöngvunum Fótbolti Slæm úrslit hjá Frökkum og Spánverjum Sport Bikarmeistarar fá bara stutt sumarfrí Sport Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Handbolti Fleiri fréttir Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Sjá meira