Veður

Léttir til sunnan- og vestan­lands síð­degis

Atli Ísleifsson skrifar
Spáð er frosti, þremur til tólf stigum í dag.
Spáð er frosti, þremur til tólf stigum í dag. Vísir/Vilhelm

Það er lítilsháttar snjókoma í flestum landshlutum núna í morgunsárið og er gert ráð fyrir norðlægri eða breytilegri átt, þremur til átta metrum á sekúndu, en átta til fimmtán metrum á sekúndu austast á landinu.

Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að það létti til vestantil síðdegis og síðar líka sunnanlands en bæti í él og hvessi um norðaustanvert landið í kvöld. Er spáð frosti þremur til tólf stigum í dag þar sem verður kaldast inn til landsins.

„Norðlæg átt 5-13 á morgun en 13-18 fyrir austan. Él á norðan- og austanverðu landinu en bjart með köflum suðvestanlands. Áfram kalt í veðri.

Svipað veður á miðvikudag en dregur aðeins úr vindi,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag: Norðan 5-13 m/s, en 13-18 austast. Éljagangur eða snjókoma norðan- og austanlands, en annars bjart með köflum. Frost 3 til 12 stig, kaldast inn til landsins.

Á miðvikudag: Norðan 8-15, hvassast austast. Víða él eða dálítil snjókoma, en yfirleitt bjart sunnan heiða. Talsvert frost á öllu landinu.

Á fimmtudag: Breytileg átt 3-10 og snjókoma eða él víða um land, en úrkomulítið norðaustantil. Áfram kalt í veðri en dregur úr frosti suðvestantil.

Á föstudag: Vaxandi austanátt með snjókomu, en síðar slyddu eða rigningu syðst á landinu, en úrkomulítið fyrir norðan fram að kvöldi. Frost 5 til 14 stig en nálægt frostmarki við suðurströndina.

Á laugardag: Austlæg átt með snjókomu víða á landinu, en slydda syðst. Frost 0 til 10 stig, kaldast fyrir norðan, en rétt yfir frostmarki við suðurströndina.

Á sunnudag: Útlit fyrir vestlæga átt. Bjart með köflum en sums staðar dálítil snjókoma. Frost um mest allt land.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×