Hlýju lofti áfram beint til landsins úr suðri Atli Ísleifsson skrifar 8. janúar 2024 07:17 Hiti á landinu í dag verður yfirleitt á bilinu fimm til tíu stig. Vísir/Vilhelm Lítil hreyfing er á veðrakerfunum þessa dagana þar sem er að finna hæð yfir Norðursjó og djúp lægð suður af Grænlandi sem beina enn hlýju lofti til landsins úr suðri.
Á vef Veðurstofunnar kemur fram að það verði því suðlæg átt í dag, víða allhvass vindur eða strekkingur og súld eða rigning með köflum, en lengst af þurrt á Norður- og Austurlandi. Útlit fyrir hvassa staðbundna sunnan vindstrengi á vesturhluta landsins í dag, til dæmis á norðanverðu Snæfellsnesi og getur verið varasamt ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Hiti á landinu í dag verður yfirleitt á bilinu fimm til tíu stig, en þó getur orðið nokkuð hlýrra þar sem best lætur í hnjúkaþey. Það er litlar breytingar að sjá til morguns, en á miðvikudag dregur úr vætu og kólnar heldur. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Sunnan 10-18 m/s og rigning með köflum, en bjartviðri norðaustantil á landinu. Hiti 4 til 10 stig. Á miðvikudag: Suðlæg átt 8-18, hvassast í vindstrengjum á vestanverðu landinu. Lítilsháttar væta, en bjart að mestu á Norður- og Austurlandi. Hiti 2 til 9 stig. Á fimmtudag: Sunnan og suðvestan 13-18 og rigning, en lengst af þurrt um landið austanvert. Hiti breytist lítið. Á föstudag: Vestlæg átt og stöku skúrir eða slydduél, en þurrt á Suðaustur- og Austurlandi. Kólnar í veðri. Á laugardag og sunnudag: Vestlæg eða breytileg átt, skýjað með köflum og yfirleitt þurrt. Frost 0 til 8 stig, en frostlaust við suður- og vesturströndina.
Veður Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Sjá meira