Liverpool vann 4-0 sigur á LASK í Evrópudeildinni í knattspyrnu í kvöld.
Leikurinn var aldrei spennandi og gerðu heimamenn út um hann á fyrsta stundarfjórðungi leiksins. Lúis Díaz kom Liverpool yfir og Cody Gakpo tvöfaldaði forystuna.
Í síðari hálfleik skoraði Mohamed Salah úr vítaspyrnu áður en Gakpo bætti öðru marki sínu við.
Liverpool hefur tryggt sér sigur í E-riðli þegar ein umferð er eftir.