Skoðun

Stuðningur vegna launa fólks sem starfar í Grinda­vík

Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar

Grindvíkingar takast nú á við nýjan veruleika fjarri heimilum sínum. Verkefnin fram undan eru mörg og snúa meðal annars að húsnæðismálum, skólagöngu barna, afkomu fólks og sálrænum stuðningi. Sveitarstjórn Grindavíkur er leiðandi í að halda utan um málefni íbúa sinna og nýtur stuðnings og aðstoðar annarra sveitarfélaga, ríkisins og ríkisstjórnarinnar.

Sumu höfum við enga stjórn á – náttúruöflin eru einfaldlega miklu stærri en við. En annað getum við sannarlega haft áhrif á. Eitt af því er að draga úr áhyggjum fólks í Grindavík af afkomu sinni. Ríkisstjórnin kynnti í gær aðgerð til þess.

Fólk sem ekki getur sótt vinnu í Grindavík

Í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu höfum við undanfarna viku unnið að lagafrumvarpi sem hefur það að markmiði að vernda afkomu fólks vegna náttúruhamfaranna í og við Grindavík. Það er gert með því að veita stuðning vegna launa fólks sem starfar í bænum.

Frumvarpið tekur til fólks sem ekki getur lengur sótt vinnu á Grindavíkursvæðinu vegna þeirra aðstæðna sem uppi eru. Ríkið greiðir fjárhæð upp að ákveðnu hámarki sem gengur upp í laun sem atvinnurekandi greiðir. Við vonumst til að með þessu getum við stuðlað að því að allir atvinnurekendur greiði áfram laun. Frumvarpinu er þannig líka ætlað að viðhalda ráðningarsambandi atvinnurekenda og starfsfólks sem er afar mikilvægt.

Frumvarpið var samið í samráði við ASÍ og Samtök atvinnulífsins. Fyrir liggur að ríkið og Grindavíkurbær munu áfram greiða starfsfólki sínu á svæðinu laun og frumvarpið nær þannig eingöngu til launafólks og atvinnurekenda á almennum vinnumarkaði, auk sjálfstætt starfandi einstaklinga að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

Framlag ríkisins auðveldar fyrirtækjum að greiða fólki laun og það er mikilvægt að atvinnulífið taki þátt eftir bestu getu til að tryggja sem best afkomuöryggi fólks sem starfar í Grindavík. Þess vegna eru í frumvarpinu sett þau eðlilegu skilyrði á fyrirtæki að þau geti ekki greitt út arð fyrir lok febrúar 2025 nema að endurgreiða stuðning stjórnvalda.

Dregið úr áhyggjum af afkomu fólks

Gert er ráð fyrir að ríkið greiði fjárhæð að ákveðnu hámarki sem gangi upp í laun og stuðningurinn geti numið allt að 633.000 krónum á mánuði, auk framlags í lífeyrissjóð. Þetta er sama hámarksfjárhæð og Ábyrgðasjóður launa greiðir. Reiknað er með að kostnaður ríkissjóðs geti orðið á bilinu 1-1,5 milljarður á mánuði.

Gert er ráð fyrir að lögin gildi út febrúar á næsta ári, en vonandi skýrast aðstæður fólks sem mest á næstu vikum og mánuðum. Ákvörðun um framhaldið verður tekin þegar við sjáum hvernig mál þróast, enda erum við enn í atburðarásinni miðri.

Mikilvægast einmitt nú er að draga úr áhyggjum fólks af afkomu sinni og lögin eru þýðingarmikil aðgerð til þess.

Ríkisstjórnin stendur áfram vaktina

Grindvíkingar hafa orðið fyrir fjölþættum áföllum og ég dáist að því hvernig íbúar, stjórnkerfi og fyrirtæki í Grindavík hafa tekist á við þetta gríðarlega stóra og óvelkomna verkefni. Ríkisstjórnin mun áfram standa vaktina með Grindvíkingum.

Höfundur er félags- og vinnumarkaðsráðherra.




Skoðun

Sjá meira


×