Sport

„Erum betra varnar­lið en sóknarlið“

Andri Már Eggertsson skrifar
Pétur Ingvarsson, þjálfari Keflavíkur, var ánægður með sigurinn
Pétur Ingvarsson, þjálfari Keflavíkur, var ánægður með sigurinn Vísir/Bára Dröfn

Pétur Ingvarsson, þjálfari Keflavíkur, var afar ánægður með nítján stiga sigur gegn Álftanes 97-78.  

„Við vorum óhræddir við að skjóta boltanum og náðum að hreyfa vörnina hjá þeim og þá opnuðust þeir. Þá var leiðin auðveldari en ég bjóst við,“ sagði Pétur Ingvarsson í viðtali eftir leik og hélt áfram. 

„Við erum ekkert endilega hratt lið þannig séð. Við erum betra varnarlið en sóknarlið og þeir áttu í bölvuðu basli með að skora á móti okkur.“

Pétur var afar ánægður með varnarleik Keflvíkinga sem hélt Álftanes undir 80 stigum. 

„Menn eru að leggja sig fram, tala saman og vinna sem ein heild. Þá er hægt að stoppa svona öflugt lið eins og Álftanes.“

Remy Martin spilaði ekki síðasta leik vegna meiðsla og var tæpur fyrir leikinn í kvöld. Það var hins vegar ekki að sjá á frammistöðu hans þar sem hann spilaði afar vel sem kom Pétri á óvart.

„Ég var alltaf að reyna að taka hann út af en leikurinn stoppaði aldrei. Hann stóð sig mjög vel og í besta falli var ég að vona að hann myndi ná að spila 25 mínútur en hann spilaði tæplega 30 mínútur.“

„Hann var allavega ekki meiddur inn í klefa og þetta er á réttri leið. Við höfum verið að vinna töluvert með honum að ná sér úr þessum meiðslum,“ sagði Pétur Ingvarsson að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×