Faðir ráðherra og föðurbróðir svara fyrir sig á heimasíðunni Hrútar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 3. október 2023 12:39 Ásmundur Einar segist aldrei hafa verið yfirheyrður eða ákærður vegna málsins. Hann segir um harmleik að ræða sem hann hafi stimplað sig út úr fyrir nokkrum árum. Vísir/Arnar Bræðurnir Daði og Valdimar Einarsson hafa komið á fót heimasíðunni Hrútar. Þar vilja þeir koma á framfærum sjónarmiðum sínum um áralangar fjölskyldudeilur sem hverfst hafa um jörðina Lambeyrar undanfarna mánuði.
Daði Einarsson er faðir Ásmundar Einars Daðasonar mennta- og barnamálaráðherra. Þrjár frænkur Ásmundar hafa haldið úti hlaðvarpinu Lömbin þagna ekki. Þar hafa þær sakað Daða og Valdimar um skemmdarverk og Ásmund Einar um innbrot í útihús. Daði og Valdimar hafa ekki tjáð sig um ásakanirnar að neinu ráði til þessa. Nú er heimasíða komin í loftið þar sem snert er á fjölskylduharmleiknum frá nokkrum sjónarhornum. Bræðurnir segja á vefsíðunni að ástæður fyrir fjölskyldudeilum séu alltaf persónulegar og tilfinningasamar. „Ekki síst vegna áratuga ágreinings sem kraumar án þess að komi til beinna átaka eða uppgjörs. Áratuga ágreiningur leiðir oft til þess að deilur erfast á milli kynslóða og engin varanleg lausn er fundin eða hnútur bundinn á endann. Afskipti almennings eru oft í lok deilna vegna þess að annar málsaðili hefur ekki náð sínu fram og brýst þá út með „sannleikann og réttlætið“ að leiðarljósi en hinn aðilinn stendur eftir hljóður og vafinn „ósannindum og óréttlæti“,“ segir á heimasíðunni. Ekki aftur snúið frá árinu 1983 Daði og Valdimar segja Skúla, föður Ásu Skúladóttur sem haldið hefur úti Lömbin þagna ekki, og Danýju eiginkonu hans hafa hrakið Einar Valdimar föður systkinanna frá Lambeyrum á Hornafjörð. „Án þess að rekja nákvæmlega málsatvik, þá varð niðurstaðan sú að afi Ásu, Einar Valdimar hafnaði alfarið áformum Skúla og Dagnýjar að hefja búskap á Lambeyrum, en Sigríður Skúladóttir, móðir Skúla, gerði Skúla og Dagnýju grein fyrir þeim málalokum í júní 1983.“ Frá því augnabliki hafi ekki verið aftur snúið hvað varðaði fjölskylduna. „Skúli og Dagný fluttu frá Lambeyrum nokkrum dögum seinna. Þetta var ekki aðeins erfiður tími fyrir Einar Valdimar og Sigríði, heldur alla fjöldskylduna. Einar Valdimar kom aftur að Lambeyrum sama dag og Skúli og Dagný fluttu frá Lambeyrum.“ Daði og Valdimar telja Ásu ekki hafa fengið fræðslu um þessi mál frá foreldrum sínum. Skúli hafi ekki talað við föður sinn síðustu 24 árin sem hann lifði. Dætur Skúla telji samband foreldra þeirra við Einar Valdimar hafa hafa verið náið en nærfjölskyldan viti betur. „Andrúmsloftið var þrungið í þau örfáu skipti sem Skúli eða Dagný voru í samveru við Einar Valdimar, til dæmis við jarðarfarir eða fjölskyldusamkomur.“ Segja ráðuneytið hafa brugðist skyldu sinni Bræðurnir Daði og Valdimar saka auk þess Skúla, föður Ásu, um að stunda fjársvik á Lambeyrum. Ríkissjóður hafi greitt 30 milljónir til félagsins Dön ehf. í formi ríkisstyrkja vegna sauðfjárræktar. Félagið hafi þó ekki framleitt eitt kíló af kjöti. „Hvorki Dön. ehf eða hluthafar í félaginu hafa átt sauðkind, fjárhús, tún eða stundað sauðfjárrækt og Lambeyrar standa ekki undir því að vera lögbýli samkvæmt búvörulögum,“ segir á síðunni. Brot úr umfjöllun bræðranna Valdimars og Daða á vefsíðunni Hrútar. Dön ehf. er í eigu systkinanna Skúla Einarssonar, Valdísar Einarsdóttur og Lilju Einarsdóttur auk Sævars Þorbjörnssonar, eiginmanns Lilju. Daði og Valdimar hafi í fimm ár barist gegn þessu styrktargreiðslum til eigenda Dön ehf. en án árangurs. Líta þeir svo á að matvælaráðuneytið hafi ekki sinnt skyldu sinni gagnvart skattgreiðendum. Ása og systur hennar hafa sakað Lögregluna á Vesturlandi um að rannsaka ekki meint innbrot barnamálaráðherra og ítrekuð skemmdarverk Daða og Valdimars á jörðinni á Lambeyrum. Barnamálaráðherra hefur neitað að sjá sig um meint innbrot í samtali við fréttastofu. Hann vísaði í yfirlýsingu frá í júlí þar sem hann minnti á að hann hefði hvorki verið yfirheyrður né ákærður. Daði og Valdimar boða umfjöllun um lögregluna á nýju heimasíðunni. Sá kafli er þó enn í vinnslu.
Deilur um jörðina Lambeyrar Dalabyggð Framsóknarflokkurinn Landbúnaður Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Sjá meira