Viðskipti innlent

Hanna Birna, Helgi og Heimir Fannar í stjórn Justikal

Árni Sæberg skrifar
Hanna Birna Kristjánsdóttir, Helgi Hermannsson og Heimir Fannar Gunnlaugsson.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, Helgi Hermannsson og Heimir Fannar Gunnlaugsson. Justikal

Ný stjórn Justikal var kjörin á aðalfundi félagsins á dögunum. Stjórnin er skipuð þeim Helga Hermannsssyni, sem jafnframt er stjórnarformaður félagsins, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og Heimi Fannari Gunnlaugssyni. 

Í fréttatilkynningu segir að stjórninni sé ætlað að styrkja félagið enn frekar fyrir áframhaldandi vöxt innanlands og inn á erlenda markaði.

Helgi er framvæmdastjóri og stofnandi Sling. Hann er fyrrverandi framkvæmdastjóri og meðstofnandi Gangverks. 

Hanna Birna er formaður og meðstofnandi Heimsþings kvenleiðtoga (Reykjavík Global Forum) og ráðgjafi á aðalskrifstofu UN Women í New York. Hún er fyrrverandi þingmaður, borgarstjóri og ráðherra. 

Heimir Fannar er framkvæmdastjóri Nanitor. Hann er fyrrverandi framkvæmdastjóri Microsoft á Íslandi.

Justikal er stafrænt réttarkerfi sem gerir aðilum í dómsmálum kleift að meðhöndla gögn á öruggan og rekjanlegan hátt. Markmið Justikal er að gera málsmeðferðina fyrir dómstólum hraðari, þægilegri og skilvirkari, að því er segir í tilkynningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×