Valskonur eru meistarar meistaranna Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 1. september 2023 19:00 Valur er meistari meistaranna í kvennaflokki. Vísir/Anton Brink Valur er meistari meistaranna eftir öruggan sjö marka sigur gegn ÍBV í Meistarakeppni HSÍ í kvöld, 30-27.
Gestirnir frá Vestmannaeyjum byrjuðu leikinn mun betur og skoruðu fyrstu fjögur mörk leiksins. Eyjakonur héldu fjögurra marka forskoti fyrstu tíu mínútur leiksins, en eftir það fóru Valskonur að saxa á forskotið. Valur jafnaði loks metin í stöðunni 10-10 þegar um tólf mínútur voru eftir af fyrri hálfleik og náði forystunni í næstu sókn í fyrsta skipti í leiknum. Valskonur héldu forsytunni út hálfleikinn og staðan var 16-15, Val í vil, þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja. Heimakonur byggðu svo upp forskot sitt hægt og rólega í síðari hálfleik og náðu fimm marka forystu í stöðunni 23-18. Þegar rétt rúmar fimm mínútur voru eftir af leiknum var munurinn svo kominn upp í sjö mörk og brekkan orðin ansi brött fyrir Eyjaliðið. Valskonur hleyptu gestunum aldrei nálægt sér eftir það og unnu að lokum góðan sjö marka sigur, 30-23. Þórey Anna Ásgeirsdóttir var markahæst í liði Vals með átta mörk, en þær Birna Berg Haraldsdóttir og Elísa Elíasdóttir voru atkvæðamestar í liði ÍBV með sjö mörk hvor. Þá var Anna Úrsúla Guðmundsdóttir óvænt búin að sækja skóna upp í hillu og mætt í lið Vals og skoraði hún fjögur mörk fyrir liðið.
Olís-deild kvenna Valur ÍBV HSÍ Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Fótbolti Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Handbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Fótbolti Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Fótbolti Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Fótbolti Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Tók óvænt þátt eftir að mamma skráði hana Sport „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Handbolti Fleiri fréttir „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Sjá meira