Viðskipti innlent

Hagnaður Sýnar á fyrri hluta árs eykst

Atli Ísleifsson skrifar
Yngvi Halldórsson, forstjóri Sýnar, segir að rekstrarhagnaður haldi áfram að vaxa í takt við áætlanir.
Yngvi Halldórsson, forstjóri Sýnar, segir að rekstrarhagnaður haldi áfram að vaxa í takt við áætlanir. Sýn

Rekstrarhagnaður Sýnar hf nam 1.002 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins og jókst um 39 prósent á milli ára. Rekstrarhagnaður á öðrum ársfjórðungi var 574 milljónir króna samanborið við 322 milljónir á fyrra ári.

Þá nam hagnaður eftir skatta á fyrstu sex mánuðum ársins 483 milljónum króna samanborið við 273 milljónir króna á sama tímabili árið 2022.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu til Kauphallar en árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2023 var samþykktur á stjórnarfundi í gær.

Niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins beðið

Í tilkynningunni kemur fram að vænta megi niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins vegna kaupa Ljósleiðarans á stofnneti Sýnar ekki síðar en 28. september, en umsamið kaupverð er þrír milljarðar króna.

„Sölutorgið Bland.is var nýverið keypt. Í október má búast við niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins vegna kaupa á öllu hlutafé Eignarhaldsfélagsins Njálu, móðurfélagi Já hf., sem rekur vefsíðuna ja.is. Með kaupunum á Já og Bland verður til ný tekjustoð í rekstri Sýnar, verslun og vöruleit, auk þess sem auglýsingaplássum á vefmiðlum Sýnar fjölgar til muna.

Afkomuspá vegna ársins 2023 er óbreytt, EBIT 2.200 m.kr. til 2.500 m.kr. án einskiptishagnaðar vegna sölu stofnnets,“ segir í tilkynningunni.

Vex í takt við áætlanir

Haft eftir Yngva Halldórssyni, forstjóra Sýnar, að rekstrarhagnaður haldi áfram að vaxa í takt við áætlanir.

„Við sjáum líka ágætan takt í tekjum í kjarnastarfsemi þótt beinn samanburður sé erfiður við fyrra ár vegna óreglulegra tekna. Einkar ánægjulegt er að sjá sterkan tekjuvöxt og framlegðaraukningu í auglýsingatekjum og reiki, auk þess að áfram er góður gangur í fjarskiptum fyrirtækja.

Við höfum undanfarið gert mjög góða samninga sem munu styrkja félagið þegar fram líða stundir. Í fyrirtækjakaupum þá keyptum við Já en sá samruni er í meðhöndlun hjá SKE. Einnig keyptum við sölutorgið Bland.is sem við höfum nú þegar fengið afhent. Við sjáum mikil tækifæri í auglýsingum og annarri þjónustu á vefmiðlum og eru þessi kaup liður í því.

Við gerðum tímamótasamning við Viaplay og með þeim samningi er Vodafone með einkarétt á sölu á Viaplay vörunum í vöndli við aðrar vörur. Með þessu erum við meðal annars að einfalda líf sport áhugamanna með lækkun á heildarkostnaði heimila.

Nú í ágúst setti Vodafone í loftið fjölbreytta fjarskipta- og afþreyingarpakka sem henta öllum gerðum af heimilum. Viðtökur viðskiptavina hafa verið mjög góðar og er stefnan sett á aukningu í markaðshlutdeild í kjarnastarfsemi á næstu mánuðum,“ er haft eftir Yngva.

Vísir er í eigu Sýnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×