Þetta segir í hugleiðingum veðurfræðings um veðurhorfur á landinu í dag.
Þar segir að hiti í dag verði á bilinu tíu til átján stig. Á morgun verði norðlægari átt og bjart með köflum en áfram stöku skúrir á suðvesturhorninu. Þá breytist hitinn lítið.
Á miðvikudag verður bjartviðri en seinnipartinn þykknar upp um sunnanvert landið ásamt vaxandi austanátt og fer að rigna þar um kvöldið. Hitinn verði tólf til sautján stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Svona verður veðrið næstu daga samkvæmt Veðurstofunni:
Á þriðjudag: Hæg breytileg átt. Víða skúrir, einkum síðdegis, en bjart með köflum norðaustantil, hiti 10 til 16 stig.
Á miðvikudag: Breytileg átt 3-10 m/s og víða léttskýjað. Vaxandi austanátt og þykknar upp á sunnanverðu landinu síðdegis, fer að rigna þar um kvöldið. Hiti tíu til átján stig, hlýjast vestantil.
Á fimmtudag: Austan átt 8-13, en 13-18 með suðurströndinni. Dálítil rigning eða súld sunnan- og vestanlands, en úrkomulítið norðan- og austantil. Hiti víða tólf til átján stig.
Á föstudag: Austlæg átt 5-13 og bjart að mestu. Hiti ellefu til átján stig, hlýjast vestantil.
Á laugardag: Norðaustan 5-13. Lítilsháttar væta austanlands og með norðurströndinni, en bjart að mestu sunnan heiða. Hiti tíu til tuttugu stig, hlýjast um landið suðvestanvert.
Á sunnudag: Útlit fyrir norðlæga átt. Rigning eða súld með köflum norðanlands, annars dálitlar skúrir. Hiti átta til átján stig, hlýjast syðst.