Innlent

Enginn hand­­tekinn eftir að til­kynnt var að ein­stak­lingur kynni að bera skot­vopn

Kristinn Haukur Guðnason og Eiður Þór Árnason skrifa
Mikill viðbúnaður var í Reykjanesbæ þegar aðgerðin stóð yfir. 
Mikill viðbúnaður var í Reykjanesbæ þegar aðgerðin stóð yfir. 

Lögreglan á Suðurnesjum var kölluð út í Reykjanesbæ í kvöld þegar grunur lék á því að vopnaður maður væri á ferð í bænum.

„Götur við Vatnsnesveg eru lokaðar á þessari stundu og biðjum við vegfarendur um að virða lokanir. Þær götur sem lokanir hafa áhrif á eru Vatnsnesvegur, Hafnargata, Framnesvegur og Básvegur svo eitthvað sé nefnt,“ sagði í upphaflegri tilkynningu um lögregluaðgerð embættisins.

Samkvæmt Brunavörnum Suðurnesja óskaði lögregla upphaflega eftir því að sjúkrabíll yrði tiltækur á vettvangi en síðar var slökkviliði tilkynnt að ekki væri lengur þörf á aðstoð þeirra. Að sögn sjónarvotts voru fimm venjulegar lögreglubifreiðar á staðnum auk einnar ómerktrar um tíma á vettvangi. 

Vill ekki gefa upp hvort um skotvopn hafi verið að ræða

Lögreglan tilkynnti svo nálægt 23:00 að ástæða aðgerðanna hafi henni hefði borist upplýsingar um grunsamlegar mannaferðir klukkan 21:05. Sést hafi til aðila sem kynni að vera vopnaður skotvopni.

„Verklag vegna slíkra mála var virkjað sem krafðist þess að lögreglan þurfti að loka af litlum hluta af Reykjanesbæ til að ganga úr skugga um að hvort fyrrnefnt atvik væri rétt.

Að lokinni frekari vinnu og upplýsingaöflun á vettvangi lauk aðgerðum lögreglu núna klukkan 22:30. Enginn aðili hefur verið handtekinn vegna málsins,“ segir í tilkynningunni. 

Sigvaldi Lárusson varðstjóri á Suðurnesjum segir í samtali við fréttastofu að lögreglan hafi viljað leita af sér allan grun eftir að tilkynningin barst og sé nú búin að aflétta lokunum á svæðinu. Hann vildi ekki tjá sig um það hvort umræddur einstaklingur hafi í reynd verið vopnaður skotvopni.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×