Viðskipti innlent

Björk Eiðs­dóttir vinnur fyrir Björg­ólf Thor

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Frá vinstri: Margrét Erla Maack sjónvarpskona á Hringbraut, Björk Eiðsdóttir ritstjóri helgarblaðsins og Edda Karítas Baldursdóttir yfirmaður umbrotsdeildar. Myndir frá lokapartýi starfsmannafélags Fréttablaðsins.
Frá vinstri: Margrét Erla Maack sjónvarpskona á Hringbraut, Björk Eiðsdóttir ritstjóri helgarblaðsins og Edda Karítas Baldursdóttir yfirmaður umbrotsdeildar. Myndir frá lokapartýi starfsmannafélags Fréttablaðsins. Vísir/Vilhelm

Björk Eiðsdótt­ir, blaðamaður og fyrr­ver­andi rit­stjóri helgarblaðs Fréttablaðsins, hef­ur ráðið sig til starfa hjá Björgólfi Thor Björgólfs­syni, viðskipta­manni.

Smartland Mörtu Maríu greindi frá fréttunum í kvöld.

Björk vann síðast hjá Fréttablaðinu sem ritstjóri helgarblaðsins en sagði upp tveimur vikum áður en blaðið lagði upp laupana í mars.

Spennandi verkefni hjá Björgólfi Thor heilluðu

„Eft­ir 16 ára starf við fjöl­miðla ákvað ég að nú væri rétti tím­inn til að skipta um gír og nýta víðtæka reynslu mína á nýj­um vett­vangi. Ég sagði því upp starfi mínu sem einn rit­stjóra Frétta­blaðsins tveim­ur vik­um áður en miðill­inn var lagður niður í lok mars,“ sagði Björk í samtali við Mörtu Maríu.

„Þegar Björgólf­ur Thor í fram­haldi leitaði til mín vegna spenn­andi verk­efna fyr­ir sig skoraðist ég því ekki und­an. Ég hef þegar hafið störf og hlakka til að láta til mín taka á nýju sviði og fá tæki­færi til að starfa með þeim far­sæla viðskipta­manni,“ sagði Björk við mbl.is.

Reynd fjölmiðlakona

Ekki er ljóst hvað nákvæmleg Björk mun gera í vinnu sinni fyrir Björgólf en vafalaust mun víðtæk reynsla hennar úr fjölmiðlum nýtast vel. 

Björk hóf störf á Fréttablaðinu 2019 og var fyrst um­sjón­ar­maður á inn­blaði þess áður en hún tók við helgar­blaðinu árið 2020.

Þar áður hafði hún starfað sem ritstjóri Séð og heyrt og haldið úti vin­sæl­um sjón­varpsþátt­um á Skjá­Ein­um og á Hring­braut. Hún stofnaði tímaritið MAN árið 2013 og var rit­stjóri þess þangað til út­gáfu þess var hætt árið 2019.

Ekki náðist í Björk við skrif fréttarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×