Óhugnanleg áhrif á taugaþroska og heilastarfsemi Ólafur Björn Sverrisson skrifar 3. júlí 2023 07:00 Lára G. Sigurðardóttir, læknir og doktor í lýðheilsuvísindum ræddi skaðleg áhrif nikótínpúða. aðsend/vísir/egill Fólk áttar sig almennt ekki á gríðarlegum styrkleika nikótíns í nikótínpúðum, að sögn doktors í lýðheilsuvísindum. Samkvæmt rannsóknum hafa púðarnir mikil áhrif á taugastarfsemi og draga úr gæðum sáðfrumna.
Þetta segir Lára G. Sigurðardóttir, læknir og doktor í lýðheilsuvísindum í samtali við Vísi. Styðst hún við nýja skýrslu sérfræðinga í tóbaksvörnum við Kaupmannahafnarháskóla. Samkvæmt gögnum heilbrigðisráðuneytis nota tæplega fjörtíu prósent karlmanna á aldrinum 18 til 24 ára nikótínpúða daglega og hefur þeim fjölgað mikið á milli ára. „Það er ótrúlegt hvað þetta er búið að breiðast hratt út,“ segir Lára. „Nikótín hefur verið þekkt í fjölda ára og er vel skilgreint fíkniefni sem breytir taugatengingum í heila, sérstaklega heila sem er ekki búinn að taka út fullan þroska.“ Hjá fullorðnum einstaklingi geti nikótínneysla dregið úr virkni framheilans. „Maður á þá erfiðara með að hamla sig af eða hætta við einhverja vitleysu. Svo getur þetta valdið athyglisbresti, það er tvíburarannsókn sem sýnir fram á það. Það er óhugnanlegt hvað vísindin sýna meira og meira hversu neikvæð áhrif þetta hefur á taugaþroska og heilastarfsemi barna og ungmenna,“ segir Lára og vísar til fyrrnefndrar skýrslu. Þar er ítarlega farið út í áhrif nikótíns á taugaþroska, hjarta og lungu. Snýst upp í andhverfu sína Lára segir fólk almennt ekki átta sig á þeim gríðarlega styrkleika nikótíns sem sé í púðunum algengu. „Raunin er sú að á markaðnum eru púðar sem innihalda allt að tífalt meira magn en í einni sígarettu. Fólk verður að athuga að með því verður ávanabindingin meiri og hraðari og veldur meiri aukaverkunum,“ segir Lára og nefnir svefntruflanir og einbeitingarleysi í því samhengi. „Þó þér finnist þú fá meiri einbeitingu fyrst þegar þú notar nikótínið, sýna rannsóknir að til lengri tíma dregur neyslan umtalsvert úr getu til að einbeita sér.“ Notkunin fari í framhaldinu að snúast um fráhvörf og vanlíðan. Snýst upp í anhverfu sína, eins og Lára orðar það. Hún segir dæmi um að fólk sofi með púðana og vakni reglulega til að skipta um púða. „Í miklu magni getur þetta síðan valdið blóðþrýstingsfalli, yfirliði, krömpum og jafnvel öndunarstoppi.“ Sáðfrumur í skordýraeitri Lára efast um að nægilega gott eftirlit sé með styrkleika púðanna hér á landi en hún hefur einnig áhyggjur af markaðssetningu varanna. „Tóbaksframleiðendur, sem eiga rafrettu- og nikótínpúðana, hafa viðurkennt að beina markaðssetningu sinni að börnum. Þeir nota líka áhrifavalda til að gera þetta meira spennandi,“ segir hún. „Svona gerist þegar stjórnvöld taka ekki nægilega á þessu.“ Auk þessa hafa sænskar rannsóknir sýnt fram á að nikótín dragi úr magni sáðfrumna. „Það er lítið talað um þessi áhrif, karlmenn leggja til helming genamengis. Við vitum að þetta getur valdið genastökkbreytingum en framtíðin á eftir að leiða í ljós breytingar á gæði sáðfrumna. Viltu að sáðfrumurnar þínar séu baðaðar í skordýraeitri?“
Heilbrigðismál Nikótínpúðar Heilsa Börn og uppeldi Tengdar fréttir Skordýraeitur með nammibragði „Hvergi ódýrara en hjá okkur!“ „Virkilega gott mangó, lime og chilli bragð.“ „Ótrúlega gott piparmyntu bragð sem þú verður að prófa.“ „Afsláttur af öllum vörum og frí sending.“ „S… er ekki nútímamaður - hann er framtíðarmaður. Tækniframfarir hafa gert honum kleift að auka þægindi þín enn frekar. Ekki festast í fortíðinni.“ 11. mars 2023 07:00 Leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar leita sér aðstoðar vegna nikótínfíknar Nokkrir leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar hafa leitað sér aðstoðar vegna nikótínfíknar undanfarnar vikur og mánuði. Snus, pokarnir sem fólk setur undir vörina, virðist vera helsti skaðvaldurinn. 1. apríl 2023 10:01 Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fleiri fréttir ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Sjá meira
Skordýraeitur með nammibragði „Hvergi ódýrara en hjá okkur!“ „Virkilega gott mangó, lime og chilli bragð.“ „Ótrúlega gott piparmyntu bragð sem þú verður að prófa.“ „Afsláttur af öllum vörum og frí sending.“ „S… er ekki nútímamaður - hann er framtíðarmaður. Tækniframfarir hafa gert honum kleift að auka þægindi þín enn frekar. Ekki festast í fortíðinni.“ 11. mars 2023 07:00
Leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar leita sér aðstoðar vegna nikótínfíknar Nokkrir leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar hafa leitað sér aðstoðar vegna nikótínfíknar undanfarnar vikur og mánuði. Snus, pokarnir sem fólk setur undir vörina, virðist vera helsti skaðvaldurinn. 1. apríl 2023 10:01