Hiti að 24 stigum og hlýjast norðan- og austantil Atli Ísleifsson skrifar 16. júní 2023 07:22 Um helgina eru ekki stórar breytingar í kortunum. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir suðlægri átt í dag, þremur til átta metrum á sekúndu, og skýjuðu með köflum. Það verður lengst af þurrt um landið vestanvert en bjart að mestu austantil en stöku skúrir þar eftir hádegi.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að hiti verði á bilinu tíu til 24 stig og verður hlýjast inn til landsins fyrir norðan og austan. „Um helgina eru ekki stórar breytingar í kortunum. Suðlæg eða breytileg átt, skýjað með dálítilli vætu vestantil en bjart að mestu á austurhelmingi landsins en líkur á síðdegisskúrum þar. Frekar svalt vestanlands en hlýtt á Austurlandi. Frá og með mánudegi er útlit fyrir breytilegar áttir, vætu með köflum á víð og dreif og kólnar hægt og bítandi í veðri.“ Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag (lýðveldisdagurinn): Suðvestlæg átt 3-8 m/s en 8-13 norðvestantil. Dálítil rigning um vestanvert landið, en bjart að mestu austantil og sums staðar þokusúld við ströndina. Hiti 10 til 25 stig yfir daginn, hlýjast í innsveitum austanlands. Á sunnudag: Suðlæg eða breytileg átt 3-8 og væta með köflum vestanlands. Bjart að mestu austantil með stöku síðdegisskúrum. Hiti 8 til 23 stig, svalast við norður- og vesturströndina, en hlýjast á Austurlandi. Á mánudag: Breytileg átt 3-8. Víða rigning eða skúrir en þurrt og bjart að mestu austanlands. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast norðaustantil. Á þriðjudag: Vestlæg eða breytileg átt 3-10 og dálítil rigning eða skúrir í flestum landshlutum. Hiti yfirleitt 8 til 18 stig að deginum, hlýjast fyrir austan. Á miðvikudag (sumarsólstöður): Suðlæg eða breytileg átt, bjart með köflum en stöku skúrir á víð og dreif. Hiti yfirleitt 8 til 13 stig. Á fimmtudag: Útlit fyrir suðlæga átt. Rigning eða súld með köflum á sunnan- og vestanverðu landinu en annars úrkomulítið. Hiti 10 tli 15 stig.
Veður Mest lesið Prestur á Dalvík sver af sér kjaftasögur um ókristilega hegðun Innlent Gekk berserksgang og beraði sig Innlent Stjórnarformaður RÚV vill að Ísrael verði tafarlaust vikið úr Eurovision Innlent Kurr innan Samfylkingarinnar vegna brottvísunar ungbarna Innlent Sótti kindabyssu eftir hótun um að skjóta fyrrverandi og fimm aðra Innlent „Af hverju ertu svona í framan?“ Innlent Sendir þjóðvarðliðið til Chicago Erlent Fjögurra manna fjölskylda meðal látinna Erlent Var að streyma á TikTok þegar hann féll til jarðar og lést Erlent Leikskólamál, afnám hafta og Trump-isminn Innlent Fleiri fréttir Lægð á Grænlandshafi stjórni veðrinu þennan daginn Sleppum ekki alveg við leiðindi Gular viðvaranir og allt að 45 metrar á sekúndu í hviðum Hægviðri og víða bjart Skúrir og áfram milt í veðri Suðlægar áttir og úrkoma í flestum landshlutum Sunnan strekkingur og vætusamt Allhvass vindur sunnan- og vestanlands og rigning Fyrsta haustlægðin mætt til landsins Von á mesta vindinum í marga mánuði Búast við auknu álagi á fráveitu vegna mikillar úrkomu Röð lægða með hefðbundnu haustveðri Lægðagangur næstu daga býður upp á sígilt haustveður Strekkingsvindur og fremur vætusamt næstu daga Vaxandi vindur þegar líður á daginn Grunn lægð yfir landinu í dag en suðlægir vindar á morgun Víða kaldi og allhvasst en lægir smám saman í dag Gular viðvaranir og svalri norðanátt beint til landsins Slydduél norðantil en þurrt og bjart sunnan heiða Kólnar í kvöld og allvíða næturfrost Kólnar þegar líður á vikuna Milt veður og víða væta Rigning með köflum víðast hvar Blautt víðast hvar Dálítil rigning og lægðir á sveimi Væta með köflum og dregur úr vindi Víða rigning og hiti að fjórtán stigum Hvasst og samfelld rigning austast Má reikna með vatnavöxtum suðaustantil Rigning í dag Sjá meira