Hiti að sautján stigum suðvestanlands og 24 stigum norðaustantil Atli Ísleifsson skrifar 15. júní 2023 07:11 Óljóst er hvort birti til á höfuðborgarsvæðinu seinnipartinn en þá gæti hiti farið upp í sautján stig. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir suðlægri átt í dag, víða þremur til átta metrum á sekúndu en heldur hvassara á norðanverðu Snæfellsnesi og á Ströndum.
Skýjað verður að mestu um sunnanvert landið og sums staðar dálítil væta. Það verður bjart með köflum fyrir norðan en líkur á stöku síðdegisskúrum. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að hiti verði á bilinu tíu til 24 stig, svalast við sjóinn sunnan- og vestantil, en hlýjast norðaustantil. Óljóst sé hvort birti til á höfuðborgarsvæðinu seinnipartinn en þá gæti hiti farið upp í sautján stig. „Á morgun verður vestlæg átt og skýjað með dálítilli vætu um landið vestanvert. Bjart að mestu austanlands en eins og í dag líkur á stöku síðdegisskúrum. Áfram hlýtt í veðri, einkum eystra. Á lýðveldisdaginn er útlit fyrir suðvestlæga átt. Skýjað, lítilsháttar væta og frekar svalt vestanlands og við suðurströndina en bjartviðri og hlýtt norðaustanlands,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Suðlæg átt 3-8 m/s. Skýjað um vestanvert landið og lítilsháttar væta. Víða bjartviðri austantil, en líkur á síðdegisskúrum inn til landsins og þokusúld við sjávarsíðuna. Hiti 10 til 22 stig yfir daginn, hlýjast Austanlands en svalast í þokulofti. Á laugardag (lýðveldisdagurinn): Suðvestlæg átt 3-8 og dálítil rigning um vestanvert landið en bjart að mestu austantil en sums staðar þokusúld við ströndina. Hiti 10 til 25 stig yfir daginn, hlýjast inn til landsins á Austurlandi. Á sunnudag: Norðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og væta með köflum. Hiti 8 til 20 stig, svalast við norður- og vesturströndina, en hlýjast í innsveitum austanlands. Á mánudag: Norðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s. Víða rigning um austanvert landið en skýjað með köflum og lengst af þurrt vestantil, styttir upp um kvöldið. Hiti 8 til 18 stig, svalast við norðurströndina, en hlýjast í uppsveitum sunnanlands. Á þriðjudag og miðvikudag (sumarsólstöður): Austlæg eða breytileg átt, skýjað með köflum og þurrt, en líkur á síðdegisskúrum. Hiti víða 8 til 13 stig yfir daginn.
Veður Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Sjá meira