Veður

Vaxandi sunnan­átt á vestan­verðu landinu

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti á landinu verður á bilinu tíu til átján stig í dag og verður hlýjast eystra.
Hiti á landinu verður á bilinu tíu til átján stig í dag og verður hlýjast eystra. Vísir/Vilhelm

Veðurstofan gerir ráð fyrir hægri suðlægri átt í dag þar sem skýjað verður að mestu en úrkomulítið.

Gera má ráð fyrir vaxandi sunnanátt á vestanverðu landinu eftir hádegi og að það fari að rigna þar seinnipartinn.

Á vef Veðurstofunnar segir að hiti verði á bilinu tíu til átján stig og hlýjast eystra.

„Veðrið á fimmtudag og föstudag er mjög svipað. Sunnan og suðvestan 8-15 m/s og rigning eða súld en hægari og úrkomuminna austantil. Hiti breytist lítið.

Dregur úr úrkomu aðfaranótt laugardags. Vestlæg átt 5-13 á laugardag en víða bjart en dálítil væta norðaustanlands í fyrstu. Heldur svalara með hita 5 til 12 stig.

Á sunnudag og mánudag verður fremur hæg breytileg átt, bjart að mestu og hlýrra, hiti 10 til 18 stig en allt að 21 stigi eystra á mánudag,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag: Sunnan og suðvestan 8-15 m/s og víða rigning en heldur hægari vindur og úrkomulítið um landið austanvert. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast á Austurlandi.

Á föstudag: Suðlæg átt 8-15 og rigning eða súld, hiti 8 til 13 stig, en þurrt og víða bjart um landið norðaustanvert og hiti að 18 stigum á þeim slóðum. Dregur úr úrkomu um kvöldið.

Á laugardag: Vestlæg eða breytileg átt 5-10, og víða bjartviðri en litilsháttar væta norðvestantil. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast austantil.

Á sunnudag og mánudag: Hæg vestlæg eða breytileg átt og víða léttskýjað. Hiti 10 til 18 stig yfir daginn, hlýjast í innsveitum norðaustanlands.

Á þriðjudag: Útlit fyrir suðlæga átt 5-13 og dálítla vætu um sunnan- og vestanvert landið en bjart með köflum norðan- og austantil. Hiti 12 til 24 stig, hlýjast norðaustanlands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×