Tryggvi og félagar með bakið upp við vegg eftir tap í framlengingu Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 25. maí 2023 19:03 Selfyssingurinn Tryggvi Þórisson er leikmaður Sävehof. Vísir/Hulda Margrét Tryggvi Þórisson og félagar hans í Sävehof eru komnir með bakið upp við vegg í úrslitaeinvígi sænska handboltans eftir naumt tveggja marka tap gegn Kristianstad í framlengdum leik í kvöld, 33-31.
Kristianstad og Sävehof höfnuðu í efstu tveimur sætum deildarinnar í vor, Kristanstad varð deildarmeistari og Sävehof hafnaði í öðru sæti. Heimamenn í Kristianstad skoruðu fyrstu þrjú mörk leiksins í kvöld, en eftir það var allt í járnum. Liðin skiptust á að hafa forystuna og munurinn á liðunum í hálfleik var tvö mörk, staðan 14-12. Munurinn varð aldrei meiri en tvö mörk það sem eftir lifði leiks, en heimamenn í Kristianstad virtust þó alltaf hálfu skrefi framar. Tryggvi og félagar náðu forystunni einu sinni í seinni hálfleik í stöðunni 16-17, en jafnt var þegar venjulegum leiktíma lauk, 28-28. Því þurfti að grípa til framlengingar til að skera úr um sigurvegara. Þar reyndust heimamenn sterkari og unnu að lokum tveggja marka sigur, 33-31. Kristianstad hefur nú unnið tvo leiki af þremur í úrslitaeinvíginu og geta tryggt sér sænska meistaratitilinn með sigri í næsta leik liðanna sem fram fer á laugardaginn.
Sænski handboltinn Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Íslenski boltinn Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Fleiri fréttir Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Sjá meira