Rússar gerðu árásir á úkraínskar borgir í morgun Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 4. maí 2023 07:11 Á myndinni sést tjón af völdum árásar sem Rússar gerðu í Uman á dögunum þar sem margir létu lífið. AP Photo/Bernat Armangue Sprengingar hafa heyrst víða um Úkraínu í nótt og í morgun, degi eftir að Rússar sökuðu Úkraínumenn um að gera drónaárás á Kreml í Moskvu.
Rússar hafa gert árásir á höfuðborgina Kænugarð en einnig í Zaporizhzia og Odesa. Engar fregnir hafa borist af mannfalli. Volodómír Selenskí Úkraínuforseti er enn á ferðalagi en eftir heimsókn sína til Helsinki í Finnlandi í gær þar sem hann hitti forsætisráðherra Norðurlandanna hélt hann til Haag í Hollandi þar sem hann mun hitta ráðamenn þar í landi og heimsækja alþjóða glæpadómstólinn sem þar er staðsettur og rannsakar nú meinta stríðsglæpi Rússa í Úkraínu. Rússar saka Úkraínumenn um að hafa reynt að ráða Vladímír Pútín af dögum með drónaárás gærdagsins en á myndbandi sést glöggt hvernig dróni skellur á Kreml, aðsetri forsetans og veldur sprengingu. Selenskí hefur þvertekið fyrir að Úkraínumenn hafi komið þarna nærri og segir að Úkraínumenn ráðist ekki á Moskvu, heldur verji þeir eigið landssvæði. Pútín forseti var ekki í Kreml þegar árásin var gerð og því aldrei í hættu og hafa sumir sérfræðingar haldið því fram að líklegra sé að Rússar hafi sjálfir sviðsett árásina á Kreml fremur en að Úkraínumenn hafi staðið þar að baki.
Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Rússland Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Fleiri fréttir Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Sjá meira