Frá þessu greinir í tilkynningu frá Play. Þar kemur fram að Arnar hafi verið framkvæmdastjóri sviðsins þar til fyrir rúmu ári þegar hann hafi ákveðið að setjast aftur í flugstjórasætið í fullu starfi.
„Arnar Már er einn af stofnendum Play og var forstjóri á sprotastigi flugfélagsins á árunum 2019-2021 áður en félagið hóf sig til flugs.
Arnar tekur við framkvæmdastjórastöðunni af Guðna Ingólfssyni sem mun láta af störfum á næstunni. Guðni hefur verið framkvæmdastjóri sviðsins frá því í mars 2022,“ segir í tilkynningunni.
Haft er eftir Birgi Jónssyni, forstjóra Play, að hann sé ofsalega ánægður að fá Arnar Má aftur í framkvæmdastjórn Play á þessum tímapunkti, úthvíldan og til í slaginn.
„Arnar hefur verið lykilmaður í sögu PLAY enda einn af stofnendum félagsins. Arnar var öflugur liðsmaður framkvæmdastjórnar félagsins áður en hann ákvað að háloftin kölluðu og það er gott að fá krafta hans aftur inn í framkvæmdastjórn PLAY á þessu mikilvæga ári í sögu félagsins. Ég veit að flugrekstrarsviðið verður í góðum höndum hjá Arnari. Á sama tíma vil ég þakka Guðna Ingólfssyni kærlega fyrir vel unnin störf síðasta árið á mikilvægum uppbyggingartíma félagsins. Ég óska honum jafnframt góðs gengis í því sem hann tekur sér fyrir hendur,“ segir Birgir Jónsson.
Þá er haft eftir Arnari Má að það sé mikið tilhlökkunarefni að vinna með öflugum hópi fagfólks á flugrekstrarsviði Play á nýjan leik, fólki sem hann þekki þegar vel. „Það hefur gefið mér afskaplega mikið að vinna síðastliðið ár í framlínunni og fljúga okkar glæsilegu og nýju Airbus flugvélum til allra okkar áfangastaða bæði í Norður Ameríku og Evrópu, með frábærum hópi flugfólks bæði í flugstjórnarklefanum og farþegarými. Það eru spennandi tímar fram undan enda mikil uppbygging á komandi mánuðum hjá flugfélaginu sem gaman verður að takast á við með frábæru samstarfsfólki í lofti sem og á jörðu niðri,” segir Arnar Már Magnússon.