Árni Bragi um Valsorðróminn: „Þetta kemur í ljós á næstu dögum“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. mars 2023 14:00 Árni Bragi Eyjólfsson eftir bikarúrslitaleik Aftureldingar og Hauka. vísir/hulda margrét Nýkrýndi bikarmeistarinn Árni Bragi Eyjólfsson segir að framtíð sín komi í ljós á næstu dögum.
Árni Bragi verður samningslaus eftir tímabilið og hefur verið orðaður við Íslandsmeistara Vals. Stefán Árni Pálsson spurði hann út í orðróminn í hlaðvarpi Seinni bylgjunnar í dag. „Ég hef af þessu en það sem ég get sagt um þetta er að þetta kemur allt í ljós á næstu dögum. Ég er ekki búinn að skrifa undir eitt eða neitt og er bara að skoða mín mál vel eins og menn á mínum aldri, 28 ára,“ sagði Árni. „Ég er bara að skoða hvað er best fyrir mig og mína og hvar ég tel möguleikana á að góðir hlutir gerist. Slúðrið er búið að ganga of langt. Þetta kemur í ljós. Það er eina sem ég get sagt.“ Árni Bragi varð bikarmeistari með Aftureldingu um liðna helgi. Mosfellingar unnu þá Hauka í úrslitaleik Powerade-bikarsins, 27-28. Árni Bragi skoraði tvö mörk í leiknum. Árni Bragi hefur leikið með Aftureldingu allan sinn feril ef frá er talið eitt tímabil með Kolding í Danmörku og eitt tímabil með KA. Hann var valinn besti leikmaður Olís-deildarinnar þegar hann lék með KA. Í vetur hefur Árni Bragi skorað 96 mörk í átján leikjum í Olís-deildinni. Afturelding mætir KA fyrir norðan í 19. umferð deildarinnar í kvöld.
Olís-deild karla Afturelding Valur Mest lesið Verður Aron þjálfari FH? Handbolti Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Enski boltinn Ef ég væri að spila gegn Liverpool myndi ég trúa á sigur Íslenski boltinn Danskur skúrkur og Wolfsburg fallið í fyrsta sinn í 30 ár Fótbolti Guðni eftir sigur FH: „Gáfumst aldrei upp“ Íslenski boltinn Öflug sveit á Norðurlandamótið Sport Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Enski boltinn Uppgjörið: Breiðablik - FH 2-3 | Veisla í Kópavogi Íslenski boltinn Haukar ósigraðir á toppnum Íslenski boltinn Enn er Rosenborg í veseni Fótbolti Fleiri fréttir Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Elín Klara endaði leikinn með látum og er einum sigri frá titlinum Þjálfari Magdeburg sækist ekki eftir starfi Alfreðs Donni dreginn að landi af liðsfélögunum Magnaður Einar Bragi með ellefu mörk í fyrsta úrslitaleiknum Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Ungverjagrýlunni hent út en gæti enn fengið boð á ballið Naumt tap hjá Íslendingaliðinu í fyrri úrslitaleiknum Færeyingar í skýjunum með HM-sætið: „Eigum bara eftir að verða betri“ Færeyjar á HM í fyrsta sinn Strákarnir hans Dags unnu Svía Yngri bróðir Sagosen steig á svið er Noregur komst á HM Alfreð og hans menn fengu ekki að hefna sín neitt Sjá meira