Lægð nálgast og bætir í vind í kvöld Atli Ísleifsson skrifar 22. febrúar 2023 07:25 Frost verður á bilinu núll til átta stig í dag. Vísir/Vilhelm Vindur er nú að ganga niður fyrir austan og fyrri part dags verður tiltölulega rólegt veður víðast hvar, stöku él og frost á bilinu núll til átta stig.
Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar. Þar kemur fram að seinnipartinn komi lægð inn á Grænlandshaf og þá snúist í sunnan fimm til þrettán metra á sekúndu og það hlýni sunnan- og vestanlands með slyddu eða snjókomu og síðar rigningu. Seint í kvöld bæti svo í vind og þá fari að snjóa á norðaustanverðu landinu. „Vestan og suðvestan kaldi eða stinningskaldi á morgun og dálitlar skúrir eða él, en það verður bjart að mestu suðaustanlands. Eftir hádegi dregur svo úr vindi. Hiti 0 til 6 stig að deginum.“ Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Vestan og suðvestan 8-15 m/s og dálitlar skúrir eða slydduél, en þurrt að kalla á Suðaustur- og Austurlandi. Dregur úr vindi seinnipartinn. Hiti 0 til 6 stig. Á föstudag: Sunnan og suðvestan 5-13 og dálítil væta með köflum, en léttir til á Austurlandi. Hiti 0 til 7 stig. Hvessir vestanlands um kvöldið. Á laugardag: Allhvöss eða hvöss sunnanátt um morguninn og rigning, en hægari og þurrt um landið norðaustanvert. Dregur síðan úr vindi og úrkomu. Hiti 2 til 9 stig. Á sunnudag og mánudag: Suðlæg átt og væta með köflum, en yfirleitt þurrt á Norður- og Austurlandi. Hlýtt í veðri. Á þriðjudag: Suðvestlæg eða breytileg átt og sums staðar dálítil rigning eða slydda. Kólnar í veðri.
Veður Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Snarpar vindkviður á Austfjörðum og sunnan við Vatnajökul Varað við hviðum á Austurlandi en blíðu í höfuðborginni Skýjað með köflum „Góðar líkur“ á því að margir sjái til sólar Rofar til og allt að tuttugu stig suðvestanlands Vara við allhvössum vindi á Snæfellsnesi Sólin gæti litið við í borginni um helgina Gæti kólnað fyrir austan þegar líður á vikuna Hæð langt suður í hafi dælir hlýju lofti til landsins Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Bjart austantil en skýjað og svalt við vesturströndina Líkur á stöku skúrum fyrir austan Viðvaranir vegna hvassviðris Rigning og hvasst öðrum megin en sól og bjart hinum megin Vegfarendur hvattir til að fylgjast með viðvörunum Verður íslenska hitametið slegið á morgun? Ekki að vænta mikilla breytinga í veðri Mest 27 gráður en Reykvíkingar þurfa að bíða Væta vestantil en hlýjast fyrir austan Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Gular veðurviðvaranir í kortunum Bjart og allt að tuttugu og fimm stig á Austurlandi Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Dregur úr vætu síðdegis og hiti að átján stigum Hitatölurnar hækka fyrir austan Varhugaverðar hviður á Suðurlandi Víða allhvass vindur og úrkomubakki nálgast Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Allt að sautján stiga hiti Bjart og hlýtt sunnan heiða Sjá meira