Vala, Einar, Fríða og Guðmundur til Carbfix Atli Ísleifsson skrifar 14. febrúar 2023 13:39 Vala Jónsdóttir, Guðmundur Ólafsson, Einar Magnús Einarsson og Fríða Jónsdóttir. Carbfix Vala Jónsdóttir, Einar Magnús Einarsson, Fríða Jónsdóttir og Guðmundur Ólafsson hafa öll verið ráðin til Carbfix.
Í tilkynningu kemur fram að Vala hafi verið ráðin til að stýra mannauðsmálum. „Vala var áður starfsþróunarstjóri hjá Össuri og þar áður mannauðsráðgjafi og viðskiptastjóri hjá Gallup Íslandi og verkefnastjóri hjá Félagsvísindastofnun. Hún er með B.A. próf í sálfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. próf í stjórnunarsálfræði frá háskólanum í Nottingham. Einar Magnús Einarsson hefur verið ráðinn verkefnastjóri í rannsóknar- og þróunarverkefnum. Einar hefur starfað sem sérfræðingur hjá Fjársýslunni, verkefnastjóri í Þróunardeild Össurar og þar á undan sem veðurfræðingur á Veðurstofunni, RÚV og hjá Belgingi. Hann er með B.Sc. próf í jarðeðlisfræði frá Háskóla Íslands og MBA próf frá Háskólanum í Reykjavík. Fríða Jónsdóttir hefur verið ráðin sem jarðeðlisfræðingur í verkefnaþróun. Fríða var áður hjá verkfræðistofunni VSÓ ráðgjöf þar sem hún sinnti m.a. skipulagningu jarðtæknirannsókna og jarðtækniútreikningum. Hún er með B.Sc. próf í jarðeðlisfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. próf í jarðeðlisfræði frá Uppsala-háskóla. Guðmundur Ólafsson hefur verið ráðinn sem verkefnastjóri á tæknisviði. Guðmundur var áður verkefnastjóri á iðnaðarsviði Mannvits þar sem hann sinnti fjölbreyttum verkefnum á sviði endurnýjanlegra orkugjafa, umhverfismála og iðnaðar. Hann er með B.Sc. próf í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. próf í vélaverkfræði frá University of Michigan. Þau hafa öll þegar hafið störf hjá Carbfix. Um Carbfix: Carbfix hefur allt frá árinu 2012 fangað CO2 frá Hellisheiðarvirkjun og dælt því ofan í basaltjarðlög þar sem það umbreytist í stein með náttúrulegum ferlum. Hefur sú aðferð til varanlegrar og öruggrar kolefnisförgunar vakið heimsathygli. Á meðal nýrra verkefna Carbfix er Coda Terminal, fyrirhuguð móttöku- og förgunarstöð í Straumsvík, sem ætlað er að farga allt að 3 milljónum tonna af CO2 á ári,“ segir í tilkynningunni.
Vistaskipti Orkumál Coda Terminal í Hafnarfirði Mest lesið Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Viðskipti innlent Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Viðskipti erlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira