Viðskipti innlent

Hafa sam­þykkt 59 prósent um­sókna um hlut­deildar­lán

Atli Ísleifsson skrifar
Heildarkaupverð þessara 452 fasteigna nemur tæplega 18 milljörðum króna og þar af hafa verið veitt hlutdeildarlán fyrir 3,7 milljarða króna.
Heildarkaupverð þessara 452 fasteigna nemur tæplega 18 milljörðum króna og þar af hafa verið veitt hlutdeildarlán fyrir 3,7 milljarða króna. Vísir/Vilhelm

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur samþykkt 59 prósent af þeim umsóknum sem borist hafa um hlutdeildarlán frá því að opnað var fyrir umsóknir í nóvember 2020.

Í tilkynningu frá HMS er farið yfir málið og segir að af þeim 1.086 umsóknum sem hafa borist hafa 642 verið samþykktar.

Hlutdeildarlán hafa það að markmiði að bæta stöðu ungra og tekjulágra á húsnæðismarkaði. Láninu er ætlað að hjálpa fyrstu kaupendum undir ákveðnum tekjumörkum að brúa bilið við fasteignakaup, en lánað er allt að 30% fyrir útborgun en lántaki þarf að reiða fram a.m.k. 5% kaupverðs sjálfur. HMS sér um að greiða út og halda utan um hlutdeildarláni,“ segir í tilkynninguni.

Flestir á aldrinum 24 til 33 ára

Ennfremur kemur fram að samtals hafi 452 fjölskyldur fengið aðstoð við að kaupa sitt fyrsta heimili í gegnum hlutdeildarlán og telja þessar fjölskyldur um 830 einstaklinga. Um sé að ræða 618 fullorðna einstaklinga og 212 börn.

„Ef aldursdreifing lántaka er skoðuð þá er meirihluti þeirra sem hafa sótt um á aldrinum 24-33 ára, eða 54%. Aldursdreifingin nær þó alveg frá 79 ára aldri og niður í 20 ára. Því er óhætt að segja að úrræðið nái til mjög breiðs aldurshóps,“ segir í tilkynningunni.

Heildarkaupverð fasteigna tæplega 18 milljarðar

Í tilkynningu HMS segir að heildarkaupverð þessara 452 fasteigna hafi numið tæplega 18 milljörðum króna og þar af hafi verið veitt hlutdeildarlán fyrir 3,7 milljarða króna. Að meðaltali þá nemi hlutdeildarlánið um 21 prósent af kaupverði eignanna.

„Nú þegar hafa 12 hlutdeildarlán verið greidd upp af 452 og er uppgreiðslufjárhæð þeirra um 27 milljónum kr. hærri en upphafleg lánsfjárhæð, að meðaltali 2,3 milljónir per lán. Af þessum 12 lánum eru 5 vegna eigna á Selfossi, 2 á höfuðborgarsvæðinu og 2 á Akureyri. Að meðaltali hafa fasteignir hækkað um 32% frá því að viðskiptavinur kaupir þar til hann greiðir upp lánið.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×