
Fyrir nokkrum dögum tóku Rússar að beina árásum sínum á nágrannabæinn Soledar og herma óstaðfestar fréttir að þeir hafi náð yfirráðum yfir bænum.

Úkraínumenn halda áfram að hvetja Vesturlönd til að senda sér skriðdreka og önnur þungavopn sem þeir segja nauðsynlegt til að vinna á Rússum.

Úkraínuforseti var þó sigurviss þegar hann ávarpaði Golden Globe verðlaunahátíðina í gærkvöldi.
„Fyrri heimsstyrjöldin kostaði milljónir manna lífið. Seinni heimsstyrjöldin kostaði tugi milljóna manna lífið. Það verður engin þriðja heimsstyrjöld. Þetta er ekki þríleikur. Úkraína mun stöðva árás Rússa á land okkar. Okkur mun takast það með stuðningi alls hins frjálsa heims. Ég vona að þið verðið öll með okkur á degi sigursins, á degi sigurs okkar,“ sagði Zelenskyy meðal annars í ávarpi sínu.
Senda vestræna skriðdreka
Zelenskyy hitti í dag þá Andrzej Duda forseta Póllands og Gitanas Nauséda forseta Litháens. Duda tilkynnti eftir fundinn að Pólverjar myndu senda Úkraínu að minnsta kosti fjórtán Leopard skriðdreka sem framleiddir eru í Þýskalandi. Duda segir fleiri ríki sem eiga Leopard skriðdreka þurfa einnig að þá til Úkraínu.
Áður hafa ráðamenn í Finnlandi sagst tilbúnir að senda Leopard til Úkraínu. Um tvö þúsund slíkir skriðdrekar eru í notkun í þrettán ríkjum Evrópu en ríkisstjórn Þýskalands þyrfti að gefa heimild fyrir því að senda skriðdrekana til þriðja aðila eins og Úkraínu.
Sjá einnig: Senda vestræna bryndreka til Úkraínu
Þá tilkynnti Risi Sunak forsætisráðherra Bretlands í dag að hann hefði skipað Ben Wallace varnarmálaráðherra að vinna með öðrum bandamönnum að því að aðstoða Úkraínumenn frekar. Meðal annars með því að útvega þeim skriðdreka.
Breskir fjölmiðlar sögðu nýverið frá því að Bretar væru að skoða að senda breska Challenger 2 skriðdreka til Úkraínu. Sunak staðfesti það þó ekki í dag.
Gallinn er sá, samkvæmt frétt Guardian, að Bretar eiga tiltölulega fáa skriðdreka, eða 227, og geta því ekki sent marga til Úkraínu.
Úkraínumenn hafa lengi kallað eftir slíkum hergagnasendingum en forsvarsmenn þeirra ríkja sem standa við bakið á Úkraínu hafa ekki viljað taka það skref af ótta við stigmögnun í átökunum. Hingað til hafa Rússar hafa Rússar hins vegar stigmagnað átökin burt séð frá því sem Vesturlönd gera.
Bakhjarlar Úkraínu munu funda í Ramstein í Þýskalandi þann 20. janúar næstkomandi.