Málaði upp dökka mynd af stöðu lýðræðis í Bandaríkjunum Samúel Karl Ólason skrifar 3. nóvember 2022 10:33 Joe Biden, forseti Bandaríkjanna. AP/Andrew Harnik Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hvatti Bandaríkjamenn til að nýta kosningarétt sinn í þingkosningunum í næstu viku til að standa upp í hárinu á lygum og ofbeldi öfgamanna í röðum Repúblikana. Forsetinn varaði við því að þeir væru að reyna það sama og þeir reyndu í kosningunum árið 2020 og það væri að grafa undan kosningum og tryggja sér sigur án meirihluta kjósenda.
Biden sagði ekki hægt að standa á hliðarlínunum á meðan á þessu gengi. Forsetinn vísaði orðum sínum að mestu til það sem hann kallaði „öfga MAGA“-Repúblikana og vísaði þar til stuðningsmanna Donalds Trumps, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, og sagði þá minnihluta en fara með stjórnartaumana í Repúblikanaflokknum. Sjá einnig: Útlitið dökknar fyrir demókrata á lokasprettinum Biden fór hörðum orðum um Trump og það hvernig hann hefði haft slæm áhrif á stjórnmál og Bandaríkin í heild sinni. Aukin hætta á pólitísku ofbeldi Hann fjallaði einnig um árásina á Paul Pelosi, eiginmann Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildarinnar, þar sem maður réðst á hann með hamri og sagðist hafa ætlað að taka Nancy Pelosi í gíslingu. Biden sagði lygar um stolnar kosningar hafa aukið hættuna á pólitísku ofbeldi og ógnanir á undanförnum tveimur árum, samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar. „Það er ískyggilega mikil fjölgun á fólki í þessu landi sem er tilbúið til að líða pólitískt ofbeldi eða einfaldlega standa á hliðarlínunni,“ sagði Biden. „Í beinum okkar vitum við að lýðræðir er í hættu en við vitum einnig að það er á valdi okkar að verja lýðræðið.“ Biden beindi orðum sínum að hundruðum frambjóðenda Repúblikanaflokksins í þingkosningunum í næstu viku sem hafa neitað að viðurkenna niðurstöður forsetakosninganna 2020 og hafa jafnvel sagst ekki ætla að viðurkenna ósigur í komandi kosningum. Það sagði Biden vera fordæmalaust og slíkt viðhorf færi gegn lögum og anda Bandaríkjanna. Það leiddi til óreiðu. Biden bað kjósendur um að hugsa sig vel um áður en þeir greiddu atkvæði. „Á hefðbundnu ári stöndum við ekki oft frammi fyrir þeirri spurningu hvort atkvæði okkar muni varðveita lýðræðið eða ógna því. Við gerum það á þessu ári,“ sagði Biden. Sjá einnig: Hafa áhyggjur af lýðræðinu en setja það ekki í forgang „Ég vona að þið gerið framtíð lýðræðis okkar að mikilvægum lið í ákvörðun ykkar um að kjósa og hvernig þið kjósið.“ AP hefur tekið saman helstu hluta ræðu Bidens og má sjá þá í spilaranum hér að neðan. Áhugasamir geta horft á alla ræðu Bidens hér. Í frétt Washington Post segir að Alríkislögregla Bandaríkjanna og aðrar löggæslustofnanir hafi varað við því að hættan á pólitísku ofbeldi verði mikil eftir kosningarnar. Minnst fimm hafi verið ákærðir fyrir að ógna og hóta kosningastarfsmönnum í aðdraganda kosninganna . Kosningastarfsmenn eiga von á því að Repúblikanar ætli að senda fjölda fólks til að vakta kjörstaði en bandamenn Trumps hafa lagt til að þetta fólk leggi fram ítrekaðar kvartanir og búast sérfræðingar við miklum truflunum á kosningakerfinu í næstu viku. Ekki fyrsta viðvörun Bidens Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Biden varar við því að Repúblikanar ógni lýðræði Bandaríkjanna. Hann gerði það einnig í byrjun september í ræðu sem hann hélt í Boston. „Of mikið af því sem er að gerast í landinu okkar í dag er ekki eðlilegt,“ sagði Biden. „Donald Trump og MAGA-Repúblikanar tákna öfgar sem ógna grundvelli lýðveldis okkar,“ sagði Biden þá. Sjá einnig: Segir MAGA-Repúblikana ógna Bandaríkjunum Ummæli Bidens eru ekki úr lausu lofti gripin. Fjölmargir frambjóðendur Repúblikanaflokksins hafa lýst því yfir að þeir muni ekki viðurkenna úrslit kosninganna sem þau taka þátt í, nema þau vinni. Tim Michels, sem býður sig fram til embættis ríkisstjóra í Wisconsin í Bandaríkjunum, sagði til að mynda á kosningafundi með stuðningsmönnum sínum á þriðjudaginn að ef hann yrði ríkisstjóri, myndu Repúblikanar aldrei aftur tapa kosningum í Wisconsin. Hann er verktaki og nýtur stuðnings Trumps. Michels hefur neitað að segja hvort að hann, sem ríkisstjóri, myndi staðfesta niðurstöður forsetakosninga í Wisconsin þar sem Demókrati hefði unnið. Hann er einn af fjölmörgum frambjóðendum Repúblikanaflokksins sem hafa slegið á svipaða strengi.
Bandaríkin Joe Biden Þingkosningar í Bandaríkjunum Tengdar fréttir Innbrotið hjá Pelosi náðist á mynd en enginn var að horfa Innbrot á heimili Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, í San Francisco náðist á öryggismyndavélar þinglögreglu Bandaríkjanna. Enginn lögregluþjónn fylgdist þó með myndavélinni. 2. nóvember 2022 16:17 Biden tekur olíufélögin á beinið fyrir svívirðilegan gróða Bandaríkjaforseti segir olíufélögin græða svívirðilega á kostnað tugmilljóna manna sem þjáist vegna stríðsins í Úkraínu. Þau hafi brugðist samfélaginu á sama tíma og þau maki krókinn. Auki þau ekki framleiðsluna og lækki verð til neytenda geti þau búist við að skattahækkunum og öðrum aðgerðum. 1. nóvember 2022 19:21 Kvartar yfir „grimmum, hlutdrægum og kvikindislegum“ dómara Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segir að sem stjórnmálamaður eigi hann rétt á grið frá dómskerfi Bandaríkjanna þar til þingkosningarnar í næsta mánuði eru búnar. Trump fór í gær hörðum orðum yfir dómara sem heldur utan um eitt af þremur dómsmálum gegn honum í New York-ríki. 29. október 2022 09:18 Sakfelldir fyrir ráðabrugg um að ræna ríkisstjóra Þrír karlmenn á þrítugs og fimmtungsaldri voru sakfelldir fyrir að leggja á ráðin um að ræna Gretchen Whitmer, ríkisstjóra Michigan. Mennirnir tilheyrðu vopnaðri öfgasveit sem mislíkaði aðgerðir Whitmer til að stemma stigu við kórónuveirufaraldrinum. 26. október 2022 16:02 Mest lesið Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Innlent Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Erlent Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi á Akureyri Innlent Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Innlent Ákærður fyrir að stinga lækni í kvöldgöngu Innlent Áhyggjuefni að innri landamærin séu ekki betur tryggð Innlent „Kerfið er algjörlega að bregðast fólkinu“ Innlent Rafrettukóngur og eigandi Drekans sakaðir um 740 milljóna brot Innlent Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Árborg Innlent Reyndist ekki faðir stúlknanna Innlent Fleiri fréttir Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Hafa séð Hezbollah fyrir símboðum í tvö ár Gera umfangsmiklar árásir í Líbanon Felldu tugi og brenndu forsetaflugvélina Reyna að stöðva olíuleka eftir að skip sökk við Grænland Neyðarástand vegna skógarelda í Portúgal Margrét Þórhildur á sjúkrahúsi Átta ára tók fjölskyldubílinn, ók í Target og fékk sér frappó Tuttugu konur saka Mohamed Al Fayed um kynferðisofbeldi 20 létust og 450 slösuðust þegar talstöðvarnar sprungu Vitorðsmaður viðurkennir að hafa gert það sama og Pelicot Þrír handteknir eftir skotárás við skóla í Osló Talstöðvar springa einnig í Beirút Harris eykur forskotið á landsvísu Þverár Amasonfljóts þorna upp sem aldrei fyrr Símboðarnir sagðir koma frá ungversku skúffufélagi Meta úthýsir rússneskum ríkisfjölmiðlum Stærðarinnar sprengingar í vopnageymslu í Rússlandi Telur að hægt hefði verið að koma í veg fyrir kafbátsslysið Microsoft segir rússneskt tröllabú á bak við falsáróður um Harris Neitað um lausn gegn tryggingu og á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi 169 börn sem fæddust eftir 7. október á lista yfir látnu Settu sprengjur í símboðana Látin eftir hákarlaárás suður af Kanaríeyjum „Það er hula yfir sólinni“ Norskur læknir grunaður um að nauðga 88 konum Tæplega þrjú þúsund slasaðir eftir að símboðar sprungu Stækkar herinn í þriðja sinn Verður kanslaraefni Kristilegra demókrata „Ég er nauðgari eins og hinir mennirnir hér inni“ Sjá meira
Innbrotið hjá Pelosi náðist á mynd en enginn var að horfa Innbrot á heimili Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, í San Francisco náðist á öryggismyndavélar þinglögreglu Bandaríkjanna. Enginn lögregluþjónn fylgdist þó með myndavélinni. 2. nóvember 2022 16:17
Biden tekur olíufélögin á beinið fyrir svívirðilegan gróða Bandaríkjaforseti segir olíufélögin græða svívirðilega á kostnað tugmilljóna manna sem þjáist vegna stríðsins í Úkraínu. Þau hafi brugðist samfélaginu á sama tíma og þau maki krókinn. Auki þau ekki framleiðsluna og lækki verð til neytenda geti þau búist við að skattahækkunum og öðrum aðgerðum. 1. nóvember 2022 19:21
Kvartar yfir „grimmum, hlutdrægum og kvikindislegum“ dómara Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segir að sem stjórnmálamaður eigi hann rétt á grið frá dómskerfi Bandaríkjanna þar til þingkosningarnar í næsta mánuði eru búnar. Trump fór í gær hörðum orðum yfir dómara sem heldur utan um eitt af þremur dómsmálum gegn honum í New York-ríki. 29. október 2022 09:18
Sakfelldir fyrir ráðabrugg um að ræna ríkisstjóra Þrír karlmenn á þrítugs og fimmtungsaldri voru sakfelldir fyrir að leggja á ráðin um að ræna Gretchen Whitmer, ríkisstjóra Michigan. Mennirnir tilheyrðu vopnaðri öfgasveit sem mislíkaði aðgerðir Whitmer til að stemma stigu við kórónuveirufaraldrinum. 26. október 2022 16:02