Skoðun

Dregur til tíðinda í mál­sókn Gráa hersins gegn ríkinu

Wilhelm W. G. Wessman skrifar

Nýverið fékk ég eftirfarandi stöðumat á málaferlunum frá lögmönnum okkar þeim Daniel Isebarn Ágústsyni og Flóka Ásgeirssyni.

Eins og þið kannski þekkið hafa málin þrjú verið tekin til dóms í Hæstarétti sem mun kveða upp dóma á næstu 3-4 vikum. Flutningur málanna fyrir Hæstarétti gekk vel og ekkert kom á óvart í málatilbúnaði ríkisins. Sem fyrr stendur ágreiningurinn um það hvort lífeyrir almannatrygginga njóti verndar sem eign, hvort breytingar á skerðingaráhrifum lífeyrissjóðsgreiðslna á lífeyri almannatrygginga feli jafnframt í sér inngrip í fyrrnefndu réttindin (sem ágreiningslaust er að teljast eign) og hvort hinar umdeildu breytingar standist þær kröfur sem stjórnarskráin og mannréttindasáttmáli Evrópu gera til löggjafans þegar hann setur reglur er raska eignum borgaranna.

Gjafsóknarleyfi fengust útgefin skömmu fyrir aðalmeðferðina og því njóta allir áfrýjendur gjafsóknar. Eins og í héraði er það í höndum dómaranna að ákveða gjafsóknarkostnað með dómi. Þess má vænta að hann verði svipaður því sem ákveðið var í héraði.

En hvert var upphafið að málsókninni? Þegar ég fór að nálgast eftirlaunaaldur fór ég að skoða hvað ég fengi í eftirlaun frá Lífeyrissjóði verzlunarmanna sem ég hafði greitt til í 45 ár og eftirlaun frá Tryggingastofnun, ég neita að kalla þetta ellilífeyri, þetta er ekki fátækrastyrkur. Ég öðlast réttindi til greiðslu frá TR með því að greiða skatt alla mína starfsævi, í mínu tilviki frá 16 ára aldri og er enn að. Ég tók þátt í stofnun eins af lífeyrissjóðunum árið 1968 og þekki því vel hver tilgangur þeirra er, en eftirlaunakerfi okkar er byggt á þremur stoðum:

  1. Greiðslum frá TR.
  2. Greiðslum úr lífeyrissjóði.
  3. Frjálsum sparnaði.

Lífeyrissjóðirnir voru ekki stofnaðir til að niðurgreiða greiðslur frá TR, heldur sem viðbót við greiðslur frá TR.

Eftir skatt og skerðingar fékk ég greiðslu frá TR fyrir september 2022 kr. 122.620 og greiðslur fyrir sama mánuð frá LIVE kr. 261.603, eða samanlagt kr. 384.223 eftir að hafa greitt í lífeyrissjóð í 45 ár og skatta og útsvar í 64 ár. Ég hef ekki aðrar tekjur.

En lítum nú á hvað ríkið ver miklum fjármunum til að standa undir skuldbindingum við eldri borgara. Sú upphæð nemur aðeins 2,6% af vergri lands­fram­leiðslu! Á hinum Norð­ur­lönd­unum er hlut­fallið 5,4% - 11%, og með­al­tal OECD landa er 8,2%! Svona er nú munurinn á hugarfari ráðamanna þar og hér gagnvart eldri borgurum.

Með því að vinna þetta sanngirnismál myndi krónunum í buddum eldri borgara fjölga og landsmenn búa við aukið réttlæti.

Höfundur er fyrsti varaþingmaður Flokks fólksins í Reykjavíkurkjördæmi suður.




Skoðun

Sjá meira


×