Er virkilega ekki um neitt að semja? Berglind Guðmundsdóttir skrifar 31. maí 2026 08:02 „Það er ekki um neitt að semja.“ Þetta eru líklega algengustu rökin hjá þeim sem vilja ekki að Ísland hefji að nýju viðræður við Evrópusambandið. Við eigum að spara tíma og peninga því niðurstaðan liggi hvort sem er fyrir. En ef það er í raun ekki um neitt að semja, hvers vegna hafa öll þau ríki sem gengið hafa í Evrópusambandið farið í gegnum margra ára samningaviðræður? Vissulega liggur margt fyrir. Evrópusambandið hefur sitt regluverk og umsóknarríki þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði. En það þýðir ekki að viðræður séu tilgangslausar. Þvert á móti eru þær leið til að komast að því hvaða kjör standa Íslandi til boða og hvort þau henti íslenskum hagsmunum. Það er merkilegt að þeir sem telja sig vita að aðild sé Íslandi ekki í hag vilji ekki kanna hvaða kjör standa þjóðinni til boða. Ef niðurstaðan er svo augljós ættu þeir ekki að óttast viðræður. Þvert á móti ættu þær að styrkja málstað þeirra. Þegar við kaupum hús skoðum við kaupsamninginn áður en við skrifum undir. Við gerum tilboð, seljandi svarar og stundum koma fram gagntilboð. Aðeins þegar öll kjör liggja fyrir tökum við upplýsta ákvörðun um hvort við göngum til samninga eða ekki. Hvers vegna ætti Ísland að hafna því að kynna sér hvað stendur til boða áður en ákveðið er hvort samþykkja eigi samning eða hafna honum? Kostnaður við viðræður er oft nefndur. En kostnaður við vanþekkingu getur reynst meiri. Ákvörðun um framtíðarsamband Íslands við Evrópu á að byggjast á staðreyndum, ekki ágiskunum. Þeir sem segja að „það sé ekki um neitt að semja“ virðast í raun vera að segja að þeir vilji ekki vita hvað stendur til boða. Sterk þjóð óttast ekki samningaborðið. Hún óttast ekki upplýsingar og hún óttast ekki niðurstöðuna. Viðræður eru ekki aðild. Þær eru leið til að afla upplýsinga og komast að því hvort aðild sé Íslandi í hag eða ekki. Ef í ljós kemur að hún er það ekki getur þjóðin einfaldlega sagt nei. Höfundur er hjúkrunarfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
„
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar