Besta byrjun Arsenal á Englandi síðan 1903 staðfest eftir sigur í Leeds Atli Arason skrifar 16. október 2022 15:45 Bukayo Saka skoraði eina mark leiksins. Getty Images
Arsenal vann 0-1 útisigur á Leeds í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Arsenal þurfti að hafa mikið fyrir sigrinum en leikurinn stóð yfir lengur en vanalega vegna tæknilegra vandamála á Elland Road, heimavelli Leeds. Leikurinn frestaðist um rúmar 40 mínútur eftir að rafmagnsleysi olli því að tæknibúnaður dómara virkaði ekki. Bukayo Saka skoraði eina mark leiksins á 35. mínútu eftir stoðsendingu Martin Ødegaard. Patrick Bamford, leikmaður Leeds, kom af varamannabekk liðsins fyrir Rodrigo í hálfleik og Bamford fékk kjörið tækifæri til jafna leikinn þegar Leeds fékk vítaspyrnu á 64. mínútu leiksins. Aaron Ramsdale, markvörður Arsenal, sá þó við Bamford og varði vítaspyrnu hans þægilega. Þegar allt stefndi í sigur Arsenal þá fékk Leeds aðra vítaspyrnu á 94. mínútu eftir að Gabriel, leikmaður Arsenal, braut á Bamford innan vítateigs. Gabriel fékk rautt spjald að launum en eftir nánari skoðun í varsjánni var bæði vítaspyrnan og rauða spjaldið réttilega dregið til baka og Arsenal vann að lokum eins marks sigur. Sem betur fer fyrir Skytturnar, þá var tæknin í lagi. Arsenal heldur þar með í toppsæti deildarinnar eftir bestu byrjun liðsins í enskri deildarkeppni frá árinu 1903 þegar liðið vann einnig 9 af fyrstu 10 leikjum sínum. Arsenal er með þriggja stiga forskot á Manchester City sem leikur nú við Liverpool. Leeds er á sama tíma í 15. sæti deildarinnar með níu stig.
Enski boltinn Tengdar fréttir Leik Leeds og Arsenal var frestað tímabundið vegna rafmagnsleysis Stuttu eftir að leikur Leeds og Arsenal var flautaður á var hann aftur stöðvaður mínútu seinna vegna tæknilegra vandamála. Leikurinn hófst svo loksins aftur rúmum 40 mínútum síðar. 16. október 2022 13:30
Leik Leeds og Arsenal var frestað tímabundið vegna rafmagnsleysis Stuttu eftir að leikur Leeds og Arsenal var flautaður á var hann aftur stöðvaður mínútu seinna vegna tæknilegra vandamála. Leikurinn hófst svo loksins aftur rúmum 40 mínútum síðar. 16. október 2022 13:30