Úrkoma á öllu landinu í dag Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 8. október 2022 10:10 Búast má við úrkomu á öllu landinu í dag og slyddu norðanlands. Vísir/Vilhelm Gular og appelsínugular viðvaranir taka gildi á öllu landinu í fyrramálið en í dag byrjar veðrið að versna örlítið.
Búast má við austan og suðaustan 5-13 m/s og einhverri vætu í öllum landshlutum en sums staðar norðan heiða verður dálítil slydda. Hiti verður á bilinu 1 til 10 stig, mildast syðst. Í fyrramálið, eins og áður segir, kemur alldjúp lægð upp að Austurlandi og það gengur í norðan storm eða rok. Mikil slydda eða snjókoma verður á norðanverðu landinu, rigning við austurströndina en úrkomuminna sunnanlands. Varað hefur verið við éljagangi og sérstaklega slæmu ferðaveðri. Veðrið gengur svo niður aðfaranótt mánudags og á mánudag, fyrst vestantil. Á þriðjudag er svo útlit fyrir suðaustan strekking með rigningu sunnan- og vestanlands. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á sunnudag: Gengur í norðan 18-25 m/s með snörpum vindhviðum við fjöll. Mikil slydda eða snjókoma á norðanverðu landinu, rigning með austurströndinni, en úrkomuminna sunnanlands. Hiti 0 til 7 stig, mildast austast. Á mánudag: Norðan 5-10 og bjartviðri sunnan- og vestanlands. Norðvestan 13-20 og snjókoma norðaustan- og austanlands framan af degi, en lægir þar og styttir upp síðdegis. Hiti kringum frostmark, en kólnar um kvöldið. Á þriðjudag: Hægt vaxandi suðaustanátt og fer að rigna, fyrst vestantil en þurrt á norðaustanverðu landinu. Hlýnandi veður, hiti 3 til 9 stig um kvöldið. Á miðvikudag: Suðvestanátt og skúrir, en rigning um tíma austanlands. Hiti 2 til 8 stig. Á fimmtudag: Austlæg átt og rigning með köflum, en úrkomulítið á Norðausturlandi. Hiti 1 til 6 stig. Á föstudag: Útlit fyrir norðanátt með lítilsháttar slyddu eða snjókomu norðantil, en rigningu við austurströndina.
Veður Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Fleiri fréttir Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Smávegis væta norðantil en bjart sunnantil Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Víða bjartviðri en líkur á þokulofti vestantil Milt veður ríkjandi og hiti að átján stigum Hið rólegasta veður og hiti að fjórtán stigum Veðrið stjórnast af lægð á Grænlandshafi Hitinn nær upp í tíu stig Rólegheitaveður og smá skúrir Víða skúrir en hiti gæti skriðið yfir tólf stig Norðaustan strekkingur og rigning Hæg austlæg átt en skilabakki nálgast Smálægðir á sveimi og hvessir á morgun Hviður þvert á Vesturlandsveg á Kjalarnesi Oftar en ekki viðvörun í gildi í mars Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Minnkandi vindur og stöku él Víða skúrir og hvessir eftir hádegi Allhvass vindur og rigning Önnur lægð nálgast landið Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Vaktin: Austanbylur annan í páskum Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Logn í dag á undan storminum á morgun Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Gul viðvörun vegna austan stórhríðar annan í páskum Þungfært víða um land Kalt í veðri miðað við árstíma Sjá meira