Innlent

Mesta hviðan mældist 64 metrar á sekúndu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Á Reyðarfirði var gríðarlega hvasst í dag.
Á Reyðarfirði var gríðarlega hvasst í dag. AÐSEND/STEFANÍA HRUND GUÐMUNDSDÓTTIR

Óhætt er að segja að fyrsta haustlægðin hafi skollið á landinu með hvelli, ekki síst á Austfjörðum, þar sem vindstyrkur mældist mjög hár víða. Mesta hviða dagsins mældist í Hamarsfirði, 64 metrar á sekúndu. Veður lægir ekki á Austfjörðum fyrr en annað kvöld.

Eins og fjallað hefur verið í fjölmiðlum í dag hefur veðrið víða leikið landsmenn grátt. Hamfaraveður gekk yfir Reyðarfjörð svo dæmi séu tekin og skemmdir eru töluverðar í hinum ýmsu þéttbýliskjörnum svæðisins.

Hin sjaldgæfa rauða veðurviðvörun var í gildi fyrir Austfirði til klukkan níu í kvöld þegar appelsínu gul veðurviðvörun tók við. Hún er í gildi til klukkan 18 annað kvöld, þegar gul viðvörun tekur til klukkan 23 annað kvöld.

„Það er ennþá mjög vont verður þarna og appelsínugul veðurviðvörun þarna alveg vel fram á morgundaginn,“ segir Birgir Örn Höskuldsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands í samtali við Vísi. Hann reiknar ekki með að veðrið veðri jafn slæmt og í dag en þó leiðinlegt á alla venjulega mælikvarða.

„Og verður það nær allan morgundaginn. Síðdegis á morgun fer að draga úr þessu og annað kvöld verður enn þá stífur vindur en veður orðið mun skaplegra,“ segir Birgi

Fárviðri

Hvassviðri hefur einkennt þessa lægð og henni hefur fylgt óvenju mikill vindhraði. Þannig hefur meðalvindhraði mælst rúmir 34 metrar á sekúndi við Vattanes, í Hamarsfriði og Rauðanúpi, 33 metrar á sekúndu við Víkurgerði og tæplega 32 á Fáskrúðsvirði. 

Aðspurður hvort að þetta teljist ekki töluverður vindur stendur ekki á svari hjá Birgi.

„Já, 32,7 metrar á sekúndu, ef það fer yfir það, telst það sem fárvirði.“

Hvað varðar einstaka hviður þá hafa þær mælst í hærri kantinum í dag. Mesta hviðan mældist í Hamarsfirði eða 64 metrar á sekúndu. Við Höfn í Hornafirði mældist hviða 54 metrar á sekúndu. Raunar voru mældust hviður víða yfir 40 metrum á sekúndu á Austfirði.


Tengdar fréttir

„Þetta var eins og það gerist verst“

Búið er að koma öllum þeim ferðamönnum sem fastir voru á Möðrudalsöræfum í öruggt skjól. Rúmlega sjötíu erlendir ferðamenn leituðu skjóls í Fjalladýrð í Möðrudal. Staðarhaldarinn þar segir að veðrið á svæðinu hafi verið mun verra en veðurspár sögðu til um.

Í­búar í nær­liggjandi götum þustu út til að­stoða

Menn stóðu í ströngu á Oddeyrinni á Akureyri í dag vegna gríðarlegs vatnsflaums sem þar hafði flætt um götur og inn í hús á neðsta hluta Eyrinnar. Íbúar í nærliggjandi götum voru mættir á vettvang til að leggja opinberum starfsmönnum lið í baráttunni.

Veður­vaktin: 60 manns inn­lyksa í Möðru­­dal

Búast má við ofsaveðri á Austfjörðum í dag. Veður er víða farið að versna en líklegt er að ekkert ferðaveður verði á stórum hluta landsins vegna lægðar sem mun draga heimskautaloft yfir landið. Viðbragðsaðilar eru á tánum og var hættustig almannavarna virkjað í gær. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×